|
|
10.06.2009 20:47:47 / ellas
Nú jæja. Komið fram í miðjan júní og aldeilis kominn tími til að láta vita aðeins af sér á blogginu! Vona að það séu ennþá einhverjir sem kíkja hér inn þrátt fyrir að lítið sé um nýjar fréttir. Hér skal bætt úr því. Ég fór til Íslands um daginn til að vera við útskrift Dóra bróður úr tónlistarskólanum og menntaskólanum. Strákurinn stóð sig svo vel, hélt frábæra lokatónleika í Hömrum (þar sem undirrituð söng með honum eitt lag; Við gengum tvö, og tókst bara alveg ágætlega...hehe..) þar sem fullt var út úr dyrum og langt og flott prógramm var í boði. Tveimur dögum seinna útskrifaðist hann svo úr MÍ og var dúx þetta árið! Hrúgaði niður verðlaunum og hélt dúndurgóða ræðu þar sem hann tók meðal annars þýska forsetningalagið á nýtt mandólín sem hann fékk í útskriftargjöf. Fyrir þá sem ekki þekkja þýska forsetningarlagið þá er það sungið við "A, B, C, D..." og textinn er eitthvað á þessa leið: "Gegen, über, ohne, um, aus, bei, mit, nach, seit, von, zu....". Það er óþarft að taka fram að ég var, og er, að rifna úr stolti yfir litla bróður! Þetta var stórskemmtilegur tími heima en ég stoppaði stutt í Reykjavík. Nóg þó til þess að kíkja á liðið mitt í óperunni og í saumó til Kiddýar. Skil hér sérstakri kveðju til Drífu í óperunni því ég hafði algjörlega misst af kveðjunni frá henni í gestabókinni, gleymi alltaf að kíkja þangað! Mamma og pabbi komu svo með mér til baka til Vínar og stoppuðu í fimm daga. Það var frábært að hafa þau og við gerðum alveg fullt saman. Fórum í Schönnbrunn höllina, í óperuna, fullt út að borða, Stephansdom, fiðrildahúsið, hestvagnaferð um miðborgina ofl. Gaman að vera túristi hérna, maður gerir aldrei svona hluti nema að fá gesti. Ég á eftir að láta myndir á Facebook af heimsókn þeirra og fleiru skemmtilegu sem við höfum gert síðan. Við Júlli komum heim til Íslands í lok júní og verðum í allt sumar. Ég verð meira að segja fram til loka nóvember þar sem ég er að fara að vinna við sýningu í óperunni! Það leggst mjög vel í mig og ég hlakka til. Svo er planið að redda mér vinnu hér í Vín eftir það. Þessar síðustu vikur fyrir Íslandssumarið verða tileinkaðar útiveru og menningu. Við fórum í pikknik síðasta laugardag með Erlu og Rannveigu, frábær dagur á engjunum! Fórum á frumsýningu á Ariadne auf Naxos í Volksoper á sunnudaginn. Skemmtileg sýning þar á ferð. Gaman að sjá eitthvað sem maður þekkir svona vel, æðisleg tónlist! Á föstudaginn förum við í leikhús að sjá The Graduate (á þýsku..jjjeeeiii), svo er það Aida í Stadtsoper í næstu viku, Othello (leiksýning) í þarnæstu viku og La Traviata í London á leiðinni heim! Andinn verður vel nærður þegar við komum heim og vonandi líkaminn líka. Um að gera að nota líkamsræktarkortið vel þessar síðustu vikur  Jæja jæja, hlakka til að sjá ykkur öll fljótlega. Endilega skiljið eftir skilaboð svo ég viti að einhver er að lesa! Ykkar Elín.
»
04.05.2009 21:33:50 / ellas
Vorið er sko löngu komið í Vínarborg og mætti jafnvel tala um sumar, allavega á íslenskan mælikvarða! Það hefur verið um og yfir 20 stiga hiti og sól síðustu vikurnar, algjörlega yndislegt. Ég er búin að vera á fullu í þýskunni og slúttaði kúrsinum með prófi síðasta fimmtudag. Það gekk bara vel og ég er farin að finna mikinn mun á mér hvað varðar skilning og tjáningu! Er farin að geta tekið þátt í samræðum - þó svo að vissulega hljómi ég örugglega eins og vileysingur á köflum, en það er allt í lagi! Ég átti það t.d. til að þéra hundinn hans Antons í sveitinni um helgina þegar ég var að láta hann setjast; "Sitzen sie bitte" sagði ég oftar en einu sinni...hahaha...
Síðast þegar ég skrifaði voru páskar og við um það bil að fara að borða páskahérann sem beið í ísskápnum. Páskarnir voru góðir, geggjað veður að vanda og við áttum gott Páskadagskvöld með íslendingamafíunni góðu. Hérinn smakkaðist líka vel, glettilega líkur Nóa Síríus súkkulaði barasta. Bendi á myndir á Facebook af héranum, eggjunum sem ég málaði og fleiri skemmtilegum uppákomum í Vínarborg og nágrenni! Við Júlli fórum í sveitina til Antons um helgina (sem fyrir þá sem ekki vita er Anton söngkennari sem hefur stundum verið að kenna á Íslandi og þeir Júlli þekkjast þannig). Það var frábært að komast í sveitaloftið, hitta hunda, ketti, hænur, hesta og svín (djók með svínin sko...shit svínaflensan í algleymi og ég sjúkdómahræddasta svínið af þeim öllum...veit samt að flensan smitast ekki í gegnum svín, en samt, allur er varinn góður!). Við lágum í sólinni, hoppuðum á trampólíni, lékum við hundinnn, keyrðum í næstu þorp og tókum myndir af hæðunum. Þetta var alveg frábært og rosalega endurnærandi. Fleiri myndir eru væntanlegar á Facebook en einhverjar komnar nú þegar.
Ég er að koma heim til Íslands eftir 2 vikur, þann 18.maí! Ætla að vera við útskrift Dóra bróður úr Menntó og Tónlistarskólanum. Ótrúlegt að drengurinn sé orðinn svona gamall á örkotsstundu! Verð fyrir vestan fyrri vikuna og svo í Rvk frá 26.-30. Hlakka til að hitta ykkur sem flest Svo eru góðar líkur á því að við verðum á Íslandi í sumar, komum þá í byrjun júlí. Það leggst vel í mig.
Jæja, segi þetta gott í bili, knús á línuna, Elín.
»
11.04.2009 09:42:42 / ellas
Oh my oh my hvað ég hef staðið mig illa í blogginu!! Liðinn mánuður síðan ég sagði ykkur frá Egyptlandi. Kominn tími á nýjar fréttir. Undanfarin mánuður hefur verið voða góður og ég hef haft það súper gott hér í Vínarborg. Byrjaði á nýju þýskunámskeiði og það er óhætt að segja að það sé örlítið crazy; ég er látin lesa Brecht og Kafka og greina og túlka og allt saman. Þar kemur bókmenntafræðin sér vel  Ótal margar og flóknar málfræðreglur sem ég minnist ekki að hafa allar lært í menntó...hehe en það er ekki að marka. Ég var alltaf á leiklistaræfingum eða hálfsofandi. Minnir að þýskan hafi verið snemma á morgnana! Ég er orðin voða góð í þýskunni bara en þyrfti að tala hana meira, annarsstaðar en bara í skólanum. Hér heima tölum við Júlli bara íslensku (væri örugglega heavy asnalegt ef við töluðum þýsku!) Nú við Júlli byrjuðum og hættum á Barokkdansnámskeiði í skólanum hans; lærðum smá menuett og vals, en hættum svo að því þetta var á svo fáránlegum tíma. Á laugardagsmorgnum kl. 9-12. Svo vorum við líka bara allt of góð fyrir svona byrjendahóp...hahaha... Sumarið er komið í Vín. Þessa dagana eru 20 gráður eða meira og sólin skín. Það er auðvitað bara wunderbar! Maður getur ekkert verið inni í svona veðri, í dag er förinni heitið með badmintonspaða, bochabolta, nýbakað brauð, kex ofl. góðgæti í rosa fallegan garð hérna í Vín. Ætlum að fara í pikknikk nokkrir íslendingar. Æði! Brauðið er í ofninum...já já ég er orðin voða myndarleg eftir að ég varð húsfrú í Vínarborg. Baka brauð og stundum kökur, elda kvöldmat og stauja skyrtur. Nei djók með straujunina.... Við stelpurnar, Erla og Rannveig söngpíur með meiru, hittumst í vikunni til að föndra páskaegg. Þið sem voruð með mér í Listaklúbbnum Kleópötru um árið munið hvað ég er ÓGEÐSLEGA léleg í föndri. Það er ekki nokkru lagi líkt. Við semsagt máluðum á egg eftir að hafa blásið úr þeim innihaldinu. Ég tók myndir af mínum þremur og læt á Facebook fljótlega. Upp á húmorinn. Ég hef ekkert skánað síðan í Kleópötru...hahaha... Talandi um páska. Hér fær maður ekki páskaegg heldur páskahéra. Við eigum einn í ísskápnum, svo hann bráðni ekki blessaður. Hann bíður þar í sínu fjólubláa glansbréfi frá Milka. Fáum ekkert íslenskt páskaegg í ár svo við látum páskahérann duga. Hann er örugglega góður. Svo er úber páskamáltíð á dagskánni á morgun, Páskadag, með íslendingamafíunni. Skokst lambalæri á boðstólnum....mmmm... ef það skyldi ekki vera nóg þá erum við líka með nautasteikur og fleiri hundruð tegundir af kartöflum. Franska súkkulaðikakan hans Júlla í eftirmat...mmmm...hlakka til!! Annars er auðvitað hugurinn pínulítið á Ísafirðinu þessa helgina! Er að hlusta á Felix Bergsson á Rás 2, hann var að tala við Kriss og Dóra bæjó um Aldrei fór ég suður! Já ég væri til í það. En góða skemmtun þið öll heima og gleðilega páska  Það væsir ekkert um mig hérna. Held að það sé meira að segja 23. stiga hiti í dag svo garðurinn verður æði! Ég kem heim þann 18.maí og verð til 30. Dóri bróðir er að útskrifast úr MÍ og Tónlistarskólanum og ég ætla að fagna þessum tímamótum með honum. Gaman gaman gaman. Verð fyrri vikuna á Ísafirði og aðra vikuna í Rvk. Hlakka til að sjá alla!!! Nóg í bili, viðtal við Skúla Þórðar í útvarpinu núna. Ætla að hlusta. Gleðilega páska! Elín.
»
09.03.2009 15:52:57 / ellas
Jæja þá er kominn tími til að segja frá Egyptalandsferðinni góðu! Þetta var alveg ótrúleg upplifun og frábær ferð í alla staði. Við vorum á hóteli í miðborg Luxor, á mjög góðum stað og hótelið alveg ágætt. Sundlaug, bar og sólbað uppi á þaki með útsýni yfir stóran hluta borgarinnar!
Ég var í nokkra daga að jafna mig á áreitinu sem við urðum fyrir á hverjum degi. Um leið og við stigum út úr hótelinu voru komnir leigubílstjórar, hestvagnagaurar, sölumenn, lítil berfætt börn að betla, allir að bjóða okkur besta dílinn á öllu (nema litlu börnin, þau vildu fá pening fyrir að vera sæt, og sæt voru þau...oh my god!!!). Ég - sem er meðvirk í eðli mínu - átti mjög erfitt með að gefa ekki hverjum og einum góðan tíma, segja hvaðan ég væri, skoða hvað þeir voru að bjóða, tala um muninn á Íslandi og Egyptalandi osfrv. En það varð fljótlega ógerlegt, við hefðum aldrei komist úr sporunum ef við hefðum ekki hunsað einhver/flest af þessum tilboðum! Júlli var rosalega góður í að heyra ekki og ganga bara beint áfram, en ég ekki. Þurfti allavega að segja: "no thank you" og gefa smá bros... Síðustu dagana var ég þó farin að ganga blákalt áfram án þess að blikna (sérstaklega eftir að einhver gaurinn hafði reynt að selja mér te á 1000 krónur ísl. og annar laug því beint upp í opið geðið á mér að hann hefði sjálfur búið til minjagripi sem hann var að selja. Það voru eins minjagripir í öllum túristabúðunum í kring!!)
Við áttum nánast engin samskipti við konur þessa viku í Luxor því þær taka varla þátt í samfélaginu þarna. Allsstaðar voru karlar. Við sáum konurnar á götunum, en oftast ekki framan í þær, og þær voru þá að kaupa brauð eða eitthvað til heimilisins. Það voru reyndar tvær ungar konur að vinna í Fair Trade búðinni og þar keyptum við flesta hlutina því maður fékk algjöran frið við að skoða. Keyptum voðalega fallegan vefnað, púðaver og rúmföt og e-ð fleira fallegt. Þetta karlaveldi var farið að fara sjúklega í taugarnar á mér undir það síðasta og ég var farin að garga inní mér á þá sem sögðu við Júlla þegar við löbbuðum framhjá: "Ohhh you lucky man!" Sææælll....ég var komin með hnefann á loft!!
Að sjálfsögðu sáum við fullt af fornminjum, hofum, gröfum og múmmíum! Ótrúlegt að ganga um hofin og hugsa til þess að þau hafi verið byggð fyrir 3-4 þúsund árum. Og líka að fara í grafirnar og ímynda sér að þar hafi konungarnir hvílt fyrir álíka löngu síðan. Mjög merkilegt og ótrúlega fallegar skreytingar. Í einni slíkri heimsókninni, þegar við vorum á Vesturbakkanum að skoða Hatshepsut hofið, upplifði ég mig eins og Hollywood stjörnu. Við Júlli sátum á vegg þar að hvíla lúin bein þegar tveir ungir menn - um tvítugt kannski, komu að okkur og spurðu hvort þeir mættu taka mynd af mér. Þeir höfðu greinilega verið að manað sig upp í það í 5 mín. Nema hvað, auðvitað leyfi ég þeim það og finnst hálffyndið að þeir vilji mynd af mér. Um leið og þeir eru búnir að taka sitthvora myndina kemur RISA hópur af strákum...og ég er ekki að ýkja... um tuttugu manns! Og allir vildu taka mynd af mér...þetta var eitthvað skólaferðalag, kennararnir voru meira að segja æstir í mynd og ýttu nemendunum frá svo þeir gætu verið sem næst mér á myndinni!! Ég var við það að kafna úr hlátri (og egóbústi) og Júlli fór afsíðis og tók myndir af látunum. Læt myndir af þessu á Fésarann fljótlega. Þetta var ótrúlega fyndið!! Held að þeir hafi haldið að ég væri Angelina Jolie eða eitthvað - ég var með risa stór svört sólgleraugu sko...hahaha...
Ég er semsagt búin að láta fyrsta part af myndunum inn á Facebook. Júlli tók um 700 myndir í ferðinni svo það er von á fleirum! En ég held að ég sé búin að segja frá hápunktum ferðarinnar. Að sjálfsögðu borðuðum við rosa góðan mat, fórum í hestvagnaferð, sigldum á seglbát á Níl (það var reyndar allt of hvasst svo löggan stoppaði bátinn okkar og við snerum við!), sóluðum okkur og nutum lífsins.
Bakið er allt að koma til og nýrun vonandi í góðu standi! Núna um helgina var íslendinga Þorrablót og það er nú frá mörgu að segja. Það er efni í næsta blogg, er komin með krampa í fingurna! En ég verð að segja eitt: ég vann botnakeppni, semsagt vísna-botnakeppni! Vísan er of klúr til að ég láti hana gossa hér og nú og þeir sem vilja heyra hana sendi mér email...hahaha....
Ég byrjaði á nýju þýskunámskeiði í morgun og verð til 2.apríl. Nennti ekki að bíða eftir námskeiðinu í Háskólanum því það byrjar ekki fyrr en 23.mars. Svo þetta er hérna í skóla sem heitir Deatsch Academy og sérhæfir sig í þýsku fyrir útlendinga. Ég er að verða massa góð!
Nóg í bili, knús á alla, ykkar Elín. xxx
»
19.02.2009 14:09:13 / ellas
Jæja jæja. Ég fór til læknisins í gær og fékk niðurstöður úr rannsóknunum. Ég er víst með sýkingu í nýrunum...aarrrgghh...hljómar ekki vel! Og hún orsakar bakverkina. Langsótt ha? Eins gott að ég fór til læknis en ekki beint til hnykkjara. Fékk feitann pensilín skammt og fer svo aftur til læknisins á mánudaginn að taka stöðuna. Ekki veit ég af hverju maður fær sýkingu í nýrun en það er alveg eins líklegt að hún hafi verið þar lengi. Vona bara að penslínið vinni á þessu svo ekki hljótist meiri skaði af. Það er eins gott að þetta verði orðið gott eftir helgi því að við Júlli ætlum í langferð á þriðjudaginn! Alla leið til Afríku! Ég er ekki að djóka! Fengum rosa gott tilboð á hóteli og flugi til Egyptlands og ætlum að vera í Luxor í viku, skoða fornminjar, sóla okkur og borða falafel. Þetta getur maður leyft sér á hinum síðustu og verstu...hahaha.. Júlli á námslánunum, reddar öllu  Maður lifir bara einu sinni og á að njóta augnabliksins, ekki satt?? Ég hlakka rosa mikið til og vona svo sannarlega að ég verði orðin góð í bakinu og nýrunum svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af því (plús að ég meika ekki svona langt flug þar sem ég get eiginlega ekki setið!!). Ég er að skoða að fara í háskólann í eina önn; þýsku fyrir útlendinga. Það byrjar í byrjun mars og er til enda júní. 3 klst. á dag alla virka daga. Þá myndi ég svo sannarlega massa þýskuna og vera í skemmtilegu umhverfi og kynnast vonandi skemmtilegu fólki. Umfram allt tala þýsku alla daga. Ég get svo reynt að finna mér einhverja vinnu meðfram þessu. Gott plan?! Jæja, ég hef þetta ekki lengra í bili. Knús á ykkur öll, hlakka til að lesa kommentin frá ykkur  Blæ í bili, Ella nýra.
»
13.02.2009 10:57:14 / ellas
Ég hef alltaf litið á mig sem frekar djúpa manneskju, með gamla sál, afskaplega tengda mínum eigin tilfinningum og mikið innsæi í líðan annarra. Hjá slíkri manneskju skyldi ætla að í höfðinu grasseruðu djúpvitrar pælingar, heimspekilegar og ljóðrænar í senn, að viskan drypi af hverju strái, að miklar og sterkar skoðanir litu dagsins ljós á hverjum degi. Maður skyldi líka ætla að "Hlöðver Grís" komi hvergi nærri svo djúpvitrum heila. Þegar ég var í sporvagninum á leiðinni heim úr þýskunni í gær rankaði ég við mér þegar útvarpið í heilanum á mér var búið að syngja "Hlöðver Grís" á repeat örugglega svona 20 sinnum.... "Hvað dreymir þig í dag, Hlöðver Grís, hojnk honjk...hvað dreymir þig í dag, Hlöðver Grís, hojnk hojnk..." Ég hef ekki heyrt þetta lag í fjölda mörg ár og það var mér aldrei neitt sérstaklega hugleikið. Ekki skil ég hvernig heilanum á mér datt allt í einu í hug að syngja það fyrir mig í sporvagninum í gær. Af hverju var hann ekki frekar að semja ljóð???
Nú að öðru. Ég þarf að bíða fram á miðvikudag í næstu viku eftir að fá niðurstöður úr þessum blessuðu rannsóknum sem ég var í. Vonandi fæ ég þá einhverjar skýringar á bakeymslum mínum (og kannski á Hlöðveri Grís???). Ég er svona að svipast um eftir hnykkjara sjálf og er búin að kynnast konu frá Kóreu, sem á mann sem er nálastungulæknir. Hún er með mér í þýskunni. Ég fer kannski til hans í næstu viku, þegar ég er búin að fá úr rannsóknunum. Það er bara rúm vika eftir af þessu námskeiði og ég er alveg að læra fullt í málfræðinni þannig að ég ætla ekkert að skipta núna. Ég fer á næsta námskeið í mars og þá verð ég pottþétt ekki best! Þýska málfræðin er pínu strembin (samt örugglega ekkert erfið fyrir mig miðað við greyið hin sem eru með allt öðruvísi málfræði í sínum tungumálum) en föllin eru svolítið að vefjast fyrir mér sem og kynin. Hann stjarnan og hún kötturinn. Þetta meikar auðvitað engan sens!!
Ég er búin að kynnast skemmtilegri hollenskri stelpu sem hefur búið hér lengi og er núna í leikhúsfræði. Við erum alveg að bonda. Hún er að aðstoða leikstjóra í leikhúsi hérna rétt hjá með sýningu sem verður frumsýnd í mars og ég ætla að hjálpa þeim að mála sviðið á morgun. Eða allavega reyna það, veit ekki með bakið...andsk..rugl! En það verður gaman að kynnast leikhúsfólki og komast með tærnar inn í leikhús, awww sakna þess! Júlli er hress. Var í Berlín í vikunni og sá frábæra sýningu á Ariadne auf Naxos sem ég ætla að sjá þegar hún kemur hingað í sumar. Hlakka til! Yfir og út í bili, ykkar Hlöðver.
»
04.02.2009 18:57:24 / ellas
Þá er ég byrjuð í þýskunni og líkar vel. Kennarinn talar reyndar við okkur pínulítið eins og við séum bæði andlega heft og heyrnarskert. Hann hefur líka einkennilegan húmor og endurtekur nokkrum sinnum sömu brandarana, bara lægra og lægra í hvert skipti. Mjög spes. En hinir í bekknum hlægja voða mikið að honum og ég held að hann æsist allur upp við það...það er að segja hann æsist upp í brandaragírnum að því að hann heldur að okkur finnist hann svona fyndinn. Kannski er bara eitthvað að mínum íslenska húmor?! Nema hvað, ég er best í bekknum. Að sjálfsögðu! Þýskan er fljót að rifjast upp. Er að spá hvort ég ætti að skipta um kúrs og fara í þann sem kemur á eftir þessum. En þá yrði ég örugglega ekki best! Plús (og það er aðalástæðan) að ég er nýbúin að kaupa bókina sem er notuð í þessum kúrsi. Og svo er ég ekkert sérstök í svona grundvallaratriðum eins og tölustöfum og dögum. En það rifjast örugglega upp fljótt, þarf að kíkja á það. Það er náttúrulega kennt í fyrsta kúrsinum en ég lærði það fyrir...12 árum...vá hvað er langt síðan ég var í menntó!! Fór til læknis út af bakinu í dag. Það bara versnar og versnar og er nú, á einhvern undarlegan hátt, búið að færast út um allt bak og niður í rass. Ég á orðið mjög erfitt með að sitja lengur en 5 mín. í einu. Læknastofan er í húsinu á móti svo það er mjög hentugt. Læknirinn ætlar að senda mig í rannsókn, röntgen, blóðprufur og sónor (ég sagði honum samt að ég væri ekki ólétt en hann hefur kannski ekki skilið það?!? Skilst reyndar að það eigi að sóna nýrun ofl.). Svo lét hann mig fá verkjalyf og bólgueyðandi. Ég held að ég þurfi miklu frekar að fara í nálastungur eða hnykk. En ætla að sjálfsögðu að fara eftir því sem læknirinn segir, allavega til að byrja með. Svo leita ég uppi kínverskan hnykkjara. Fer í þessar rannsóknir á sjúkrahúsi hér rétt hjá á föstudaginn. Að frátöldu bakinu er búið að vera algjört æði hér í Vín. Við erum búin að stofna matarklúbb, nokkrir íslendingar, og vorum með matarklúbbskvöld síðasta laugardag heima hjá Rannveigu og Svenna. Það var rosa stuð og góður matur! Svo er bjórkvöld hjá íslendingafélaginu á föstudaginn næsta. Við fórum í óperuna í mánudaginn og sáum Draum á Jónsmessunótt eftir Britten og ætlum aftur á föstudaginn og sjá Grímudansleikinn eftir Verdi. Hér er sko af nægu að taka í menningunni! Jæja þetta er nóg í bili, knús til allra heima  Elín.
»
28.01.2009 15:02:36 / ellas
Nú er kominn tími fyrir nýja færslu! Allt að gerast!
Í gærkvöldi frumsýndi Júlli óperuna Orfeo ed Euridice eftir Haydn þar sem hann fór með hlutverk Kreons konungs. Sýningin var í Scholsstheater í Schönbrunn höllinni en það er skólaleikhúsið þeirra. Aðbúnaðurinn þar er allavega 10 sinnum betri en í íslensku Óperunni - virkilega flott leikhús! Júlli stóð sig með mikilli prýði og ég var afskaplega stolt af honum, hann var virkilega sannfærandi konungur 
Ég fór í skólann þar sem ég ætla á þýskunámskeið og hitti þar kennara í gær. Hann spjallaði við mig á þýsku í smá stund og úrskurðaði að ég ætti heima í námskeiði 3-4. Er semsagt ekki algjör byrjandi. Ætla að byrja á námskeiði 3 og færa mig yfir í 4 ef það reynist of létt. Ég hef trú á að menntaskólaþýskan eigi eftir að rifjast fljótt upp þegar ég byrja! Námskeiðið byrjar á mánudaginn kl.9 og er alla virka daga nema föstudaga frá 9-12, út febrúar. Ég hlakka rosa til að byrja og hafa eitthvað fast að gera á hverjum degi. Ég skoða atvinnuauglýsingar á hverjum degi og sé stundum eitthvað sem ég væri alveg til í að sækja um en ætla að klára námskeiðið fyrst því það er alltaf tekið fram að góð þýskukunnátta sé skilyrði.
Allt að gerast í pólitíkinni heima á Fróni! Vonandi er þetta allt í rétta átt. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu, verð að segja það. Og dáist að duglegu þjóðinni okkar að mótmæla svona yfirgangi og rugli - svona á að gera þetta!
Jæja, þetta er nóg í bili. Hlakka til að heyra frá ykkur mín kæru.
PS: Bakið er enn í fokki og ég er að hugsa um að leita mér að kíróprakter til að hnykkja eitthvað í mig! Er eins og háöldruð kona og það gengur ekki til lengdar...
Knús í klessu, Elín.
»
21.01.2009 14:28:07 / ellas
Jæja jæja þá er næstum komin vika í Vín og allt að gerast bara! Hér er margt að sjá og flest allt undarlegt fyrir íslenska stúlku eins og mig. Hér eru vírar í loftinu til að draga sporvagnana áfram, svo margir eru vírarnir að stundum er erfitt að sjá til himins. En þá er gott að nota ímyndunaraflið. Háhýsi (á íslenskan mælikvarða) eru mörg og í ýmiskonar ástandi eins og gefur að skilja.
En hér er líka afskaplega fallegt og menningin hreinlega drýpur af hverju strái. Það er eitt leikhús í sömu götu og við búum í og annað í hliðargötu, um 15 mín. frá. Menningarlegt bíóhús á horninu, í um 3 mín. fjarlægð og síðast en ekki síst lífrænt ræktuð verslun (verslun sem selur lífrænt ræktaða matvöru og aðrar hollustu vörur) rétt við hornið, í um 5 mín. fjarlægð. Nú svo er hérna á horninu líka verslunarmiðstöð þar sem hægt er að nálgast hinar ýmsu nauðsynjavörur (þar er t.d HogM og fleiri skemmtilegar búðir). Annars finnst mér glatað að það megi reykja inni í verslunarmiðstöðinni og taka hundana sína með sér. Maður angar af reyk ef maður fer þar inn í nokkrar mínútur.
Þess vegna kýs ég að ganga frekar niður á Mariahilfer Strasse sem er risastór verslunargata í 10. mín. göngufæri. Þar er HogM í öðru hverju húsi...sem er ekkert spes fyrir mig núna þar sem ég get ekkert keypt fyrr en ég fæ vinnu! En mikið verður gaman þegar ég fer að moka inn Evrunum...hahaha
Ég byrja á þýskunámskeiði í byrjun febrúar - það er ekkert í boði fyrr. En ég ætla að námskeið sem er 3 klukkutímar á dag, á hverjum degi í 4 vikur. Svo ég ætti að ná að massa þýskuna almennilega. Markmiðið er er að verða best í bekknum! Fór á vinnumiðlun þeirra Vínarbúa í gær og spjallaði þar við konu sem sagði mér að það væri útilokað að fá vinnu ef ég talaði ekki þýsku. Sama hvernig vinnu ég væri að leita að, meira að segja kaffihúsin taka ekki fólk í vinnu ef það talar ekki þýsku. Ge-fokking-nau! Svo það er ekkert annað að gera en að taka þetta föstum tökum. Ég sendi stelpu email sem var að auglýsa eftir einhverjum til að spjalla við á ensku og hún myndi svo spjalla á þýsku á móti - og við munum hittast næstu vikurnar. Þýðir ekkert annað en að tala bara og tala. Svo var auglýsing eftir ólaunuðum aðstoðarmanni leikstjóra í einu leikhúsanna fyrir einhverja sýningu sem verður frumsýnd í mars - ég sendi þeim CV og email en hef ekkert heyrt. Ætli þau tali nokkuð ensku?!!
Við Júlli ætlum að kaupa okkur kort í ræktina núna á eftir. Nú er það bara hollustan og heilsan. Og þýskan. Sakna ykkar allra. Eva mín, úff....þú verður að borða elskan mín. Sakna þín lúllan mín. Farðu vel með þig!!! Knús frá Vín, E.
»
17.01.2009 19:06:49 / ellas
Jæja þá hef ég ákveðið að hefja bloggskrif að nýju þar sem ég er nú enn og aftur búin að leggja land undir fót. Nú er ég staðsett í Vínarborg – þar sem fólk talar þýsku. Genau. Ástæðan fyrir búflutningunum er hann Júlli minn (og já blogglesesndur hafa ekkert fengið að heyra um hann áður því ég sé að síðasta færslan er rituð í febrúar fyrir ári síðan og það er akkurat um sama leyti og hann Júlli hreyf mig með sér á vængjum ástarinnar með undurfallegum söng og þokkafullum hreyfingum á sviði íslensku óperunnar). Síðastliðið ár hefur því farið í kúr og knús og ferðalög til Parísar, Vínar, Flæðareyrar og Ísafjarðar, mikla hamingju og vinnu í íslensku óperunni . Og nú er ég komin til Vínar að því að Júlli er að læra söng við Músíkháskólann hér í borg. Ég kom semsagt í fyrradag eftir að hafa pakkað öllu dótinu mínu í kassa og borið niður í geymslu. Finnst eitthvað ótrúlega stutt síðan ég bar þessa sömu kassa upp í íbúð, úr geymslunni. Var ekki einu sinni búin að lesa bækurnar sem ég tók úr hillunni núna. Hefið bara átt að geyma þær í geymslunni fyrir tveimur árum! En maður veit aldrei hvert lífið leiðir mann, það er nokkuð ljóst. Og skemmtilegt líka! Nú er ég komin til Vínarborgar í leit að nýjum ævintýrum! Planið er að fara á þýskunámskeið sem allra fyrst. Menntaskóla-þýskan kemur sér örugglega vel. Ég er allavega með smá grunn og skil sitthvað þegar fólk talar saman. Hægt. En ég þori ekkert að tala mikið sjálf enn sem komið er, enda bara búin að vera í 2 daga og hitt takmarkað mikið af austurrísku fólki. Fór reyndar með Júlla út að borða í gærkvöldi, að hitta fólk sem verður með honum í næstu uppfærslu. Það er allt hið hressasta fólkið í klassíska bransanum. Voða týpur svona. Ég skildi rosa mikið til að byrja með en svo var ég orðin svo þreytt í hausnum að einbeita mér að ég fór bara að hugsa um eitthvað annað. Á íslensku! Svo er það eitt. Ég er með stöðugan bakverk! Held að þetta hljóti að vera meðvirkni með Kiddý minni, hún fór í brjósklosaðgerð sama dag og ég flaug hingað. Eða flutningarnir hafi farið svona með mig. Ég sit eða ligg með hitapoka á bakinu og vona að þetta lagist. Nenni nú ekki að standa í einhverju svona rugli nýflutt til Vínarborgar og þarf að fara að sjúga í mig menninguna og leita mér að vinnu...
Fór með honum Svenna (sem er líka að læra söng í skólanum hans Júlla) á hip og kúl kaffihús í dag, sé mig alveg fyrir mér þar með fartölvuna að vinna að skáldsögunni minni. Júlli var á fyrstu hljómsveitaræfingunni fyrir verk sem hann frumsýnir eftir rúma viku. Duglegur strákurinn!
Ég er semsagt komin aftur í bloggheima og vona að þið munið nenna að lesa þetta kæru vinir og skilja eftir skilaboð við og við....
Knús í klessu og saknaðarkveðjur, þetta er Elín sem talar frá Vínarborg.
»
16.02.2008 18:17:59 / ellas
Ég skil ekkert í þessu...bloggið mitt hefur verið hertekið af vísi.is og nú eru allir tenglarnir mínir farnir og ég kemst þar af leiðandi ekki minn daglega bloggrúnt...eða já þið vitið hvað ég meina.
Þarf aðeins að jafna mig á þessu öllu saman og ákveða hvað ég geri. Hætti að blogga eða finn mér annan stað eða held áfram hér...kemur í ljós.
Blæ í bili, E.
»
08.02.2008 15:49:13 / ellas
...arghhhh er að missa það!!! Líður eins og veðrinu úti akkurat núna.
»
26.01.2008 23:46:48 / ellas
Þá er nú komin tími til að rita hérna smá færslu. Aðra færslu ársins og janúar næstum búinn! Ég hef ekki haft neinn frítíma að undanförnu, eytt heilu og hálfu sólahringunum niður í Óperu þar sem æfingar á La Traviata eru í algleymingi. Nú eru tæpar 2 vikur í frumsýninguna, þann 8.febrúar, og allt ætti nú að smella saman á síðustu metrunum Þetta verður hin stórfenglegasta sýning og ég mæli með því að fólk fari að tryggja sér miða strax því það er að verða uppselt á margar. Ég tók nú samt tilboði um daginn sem ég gat hreinlega ekki hafnað, þrátt fyrir að hafa engan tíma fyrir það: mér var boðið að flytja hið fallega lag BG og Ingibjargar, "Þín innsta þrá", á Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins. Lagið var valið besta lag Ísafjarðar á bb.is um daginn og því var ákveðið að flytja það við þetta tilefni í gærkvöldi á Brodway. Þangað brunaði ég strax eftir vinnu klukkan að verða hálf ellefu og var komin á svið korteri seinna! Það var alveg frábært að fá að syngja þetta lag fyrir svo þakkláta áhorfendur og greinilegt að mörgum þykir afar vænt um lagið. Þetta var stórkostlegur heiður og ég sé hálfpartinn eftir að hafa ekki kropið á hnjánum af lotningu! Dóri bróðir og félagar eru náttúrulega snillingar og þeir stóðu sig rosalega vel í tónlistarflutningnum. Nú ætla ég að reyna að troða mér inní bandið þeirra bara...næsta skref! Svo eru þeir líka svo sætir...hahahaha.... Ég hitti fullt af "gömlum" ísfirðingum og það var rosalega gaman. Vildi að ég hefði getað verið lengur en ég þurfti að mæta í vinnuna kl. 8 í morgun, en ekki hvað? Nú ligg ég eins og klessa í sófanum, úða í mig pizzu en er of löt til að standa upp og ná í rauðvínsflöskuna sem ég ætlaði að opna í kvöld. Þannig er nú það mín kæru. Vona að þið séuð öll hress und kát. Hlakka til að endurnýja kynni mín við félagslífið eftir 2 vikur! Yfir og út, ykkar Lella.
»
04.01.2008 01:12:50 / ellas
Gleðilegt 2008 allir saman! Mikið rosalega leggst nýja árið vel í mig - ég held að það verði hrein gleði og stuð, bið ykkur öll um að taka þátt í nýrri skoðanakönnun hérna til hægri  Ég kom aftur til Reykjavíkur í gær eftir frábært jóla - og áramótafrí fyrir vestan. Málaði bæinn svo sannarlega rauðann og skildi eftir mig sviðna jörð...vona að bæjarbúar jafni sig fljótlega..hehe... Þetta var nú alveg ofsalega endurnærandi í alla staði og ég náði í einhverja svakalega orku sem ég vona að haldist eitthvað fram á vorið! Annars er ég bara hálffegin að blessaða árið 2007 sé liðið og komið nýtt. Þetta var frekar erfitt ár fyrir mig persónulega, en auðvitað var margt gott líka, og flest ef út í það er farið. Það byrjaði bara á svakalegum atburði þann 7.janúar þegar Bibs minn dó, og í framhaldi af því voru næstu mánuðir brjálæðislega erfiðir: mikil vinna í nýju hlutverki sem sýningarstjóri í óperunni þar sem ég var hálfpartinn að halda mér á floti án þess að kunna að synda!! Úff púff að hugsa til baka...plús það að vera einn stressbolti í vinnunni var ég að reyna að díla við sorgina og missinn í öðru landi langt í burtu frá öllum írsku vinunum. En vinnan var nú samt afskaplega dýrmæt reynsla sem vonandi skilar sér í þeirri törn sem framundan er næstu mánuðina núna, og ég lærði heil ósköp á stuttum tíma. Þegar vorið kom varð lífið léttara, ég fór til Írlands og horfðist í augu við staðreyndir. Fór að ánni þar sem Bibs fannst og hitti fólkið hans. Fékk gott sumarfrí til að hlaða batteríin og hvar er betra að gera það en...jú akkurat...í Færeyjum?!!!! Fékk þriggja daga sjóriðu eftir siglingu með Norrænu (Friðrik bróðir minn, sjómaðurinn, vill meina að það sé ekki hægt að fá sjóriðu í svona siglingu...ég hlyti að hafa orðið geðveik tímabundið!), og eyddi tveimur vikum með fjölskyldunni minni í Færeyjum og Noregi. Það var sjúklega skemmtilegt og dýrmætt að sjálfsögðu seinna meir. Minningarnar krakkar mínir, þær eru svo mikilvægar! Nú og svo lék veðrið auðvitað við okkur íslendinga síðastliðið sumar, ég eyddi góðum tíma á Ísafirðinum mínum og svo auðvitað í Reykjavíkinni líka. Fór mikið í sund og svona, og drakk hvítvín fyrir utan veitingahús og bari....hehe.... Nenni nú ekki að rifja upp hvert og eitt smáatriði en restin af árinu var nú frekar tíðindalaus held ég. Var að vinna og öðlast meiri reynslu, að sjálfsögðu. Kynntist nýju skemmtilegu fólki í kringum vinnuna, hélt upp á þrítugsafmælið mitt, fór til Glasgow og var í góðu stuði svona almennt. Þegar hér er komið við sögu lít ég björtum augum á árið sem er að hefjast, er ekki með nein stór plön svosem en langar til að vera dugleg að eyða tíma með öllu því frábæra fólki sem ég þekki og hef annaðhvort ekkert hitt allt of lengi eða hitt allt of lítið undanfarið... Stefnan að sjálfsögðu tekin á hollustu og hreyfingu, maraþonhlaup og dansverk, ferðalög, orkuhleðslu, ást og frið. Bestu nýjárskveðjur til ykkar allra, njótið og lifið! Ykkar Elín.
»
25.12.2007 01:23:38 / ellas
Nú er ég komin vestur og verð eiginlega bara að segja að það eru forréttindi að vera frá svona fallegum stað á jörðinni! Kom á laugardaginn í góðu veðri, það var rétt að byrja að snjóa og á Þorláksmessu var bærinn orðin alhvítur. Longið stilltara en nokkru sinni og stjörnubjartur himinn umlukti okkur sem gengum friðargönguna frá kirkjunni niður á Silfurtorg. Þar spilaði lúðrasveit nokkur jólalög (greyið þau, hljóta að hafa verið að frjósa á puttunum), Skúli spilaði eitt lag á gítarinn, Anna Sigga hélt frábæra ræðu og Sunna litla systir hennar Kiddýar söng svo falleg jólalög með vinkonu sinni. Á meðan þessu stóð gekk Ruth úr Gamla bakaríinu, heiðursborgari Ísafjarðar, um með kringlur í körfu og gaf þeim sem vildu. Þarna fann maður svo vel að jólin voru að koma. Ólýsanleg stemmning sem ekki er hægt að reyna að lýsa með orðum. Um kvöldið fórum við fjölskyldan að sjálfsögðu í skötuveislu til Bryndísar og Más og þaðan fórum við systkinin í bæinn að versla síðustu gjafirnar. Fórum svo í Edinborgarhúsið og fengum okkur rammáfengt jólgaglögg og hitnuðum í kinnunum. Gengum síðan heim, tunglið lýsti upp pollinn og fjöllinn urðu mögnuð, stórbrotin og falleg, einhvernvegin bláhvít. Tignarleg. Næstum eins og málverk. Gleðileg jól til ykkar allra, vinir mínir nær og fjær. Vona að þið munið njóta jólanna og hafa það gott með ykkar nánustu. Læt með tvær myndir síðan úr miðbæjarferð í Reykjavík um daginn, þar sem við Jón Þór, Gummi og Anna Svava, hvíldum lúin bein á Vegamótum eftir verslunarleiðangur í borgarstressinu. Þar er ekki svona fallegum fjöllum fyrir að fara, hvað þá logninu góða. Finnst ykkur ég nokkuð vera með einhvern rembing???!!  Knús og kossar elskurnar mínar..... 

»
Síður: 1 2 3 ... 24
|
|