Ég hef alltaf litið á mig sem frekar djúpa manneskju, með gamla sál, afskaplega tengda mínum eigin tilfinningum og mikið innsæi í líðan annarra. Hjá slíkri manneskju skyldi ætla að í höfðinu grasseruðu djúpvitrar pælingar, heimspekilegar og ljóðrænar í senn, að viskan drypi af hverju strái, að miklar og sterkar skoðanir litu dagsins ljós á hverjum degi. Maður skyldi líka ætla að "Hlöðver Grís" komi hvergi nærri svo djúpvitrum heila. Þegar ég var í sporvagninum á leiðinni heim úr þýskunni í gær rankaði ég við mér þegar útvarpið í heilanum á mér var búið að syngja "Hlöðver Grís" á repeat örugglega svona 20 sinnum.... "Hvað dreymir þig í dag, Hlöðver Grís, hojnk honjk...hvað dreymir þig í dag, Hlöðver Grís, hojnk hojnk..." Ég hef ekki heyrt þetta lag í fjölda mörg ár og það var mér aldrei neitt sérstaklega hugleikið. Ekki skil ég hvernig heilanum á mér datt allt í einu í hug að syngja það fyrir mig í sporvagninum í gær. Af hverju var hann ekki frekar að semja ljóð???
Nú að öðru. Ég þarf að bíða fram á miðvikudag í næstu viku eftir að fá niðurstöður úr þessum blessuðu rannsóknum sem ég var í. Vonandi fæ ég þá einhverjar skýringar á bakeymslum mínum (og kannski á Hlöðveri Grís???). Ég er svona að svipast um eftir hnykkjara sjálf og er búin að kynnast konu frá Kóreu, sem á mann sem er nálastungulæknir. Hún er með mér í þýskunni. Ég fer kannski til hans í næstu viku, þegar ég er búin að fá úr rannsóknunum.
Það er bara rúm vika eftir af þessu námskeiði og ég er alveg að læra fullt í málfræðinni þannig að ég ætla ekkert að skipta núna. Ég fer á næsta námskeið í mars og þá verð ég pottþétt ekki best! Þýska málfræðin er pínu strembin (samt örugglega ekkert erfið fyrir mig miðað við greyið hin sem eru með allt öðruvísi málfræði í sínum tungumálum) en föllin eru svolítið að vefjast fyrir mér sem og kynin. Hann stjarnan og hún kötturinn. Þetta meikar auðvitað engan sens!!
Ég er búin að kynnast skemmtilegri hollenskri stelpu sem hefur búið hér lengi og er núna í leikhúsfræði. Við erum alveg að bonda. Hún er að aðstoða leikstjóra í leikhúsi hérna rétt hjá með sýningu sem verður frumsýnd í mars og ég ætla að hjálpa þeim að mála sviðið á morgun. Eða allavega reyna það, veit ekki með bakið...andsk..rugl! En það verður gaman að kynnast leikhúsfólki og komast með tærnar inn í leikhús, awww sakna þess!
Júlli er hress. Var í Berlín í vikunni og sá frábæra sýningu á Ariadne auf Naxos sem ég ætla að sjá þegar hún kemur hingað í sumar. Hlakka til!
Yfir og út í bili,
ykkar Hlöðver.