Speki Elínar
28.09.2004 21:54:11 / ellas

Er ég fyndin? Hversu fyndin er ég á skalanum 1-10?

Ekkert sérstakt að frétta síðan síðast. Bara allt við það sama. Ég er svona að venjast því að ég eigi heima hérna en sé ekki á leið heim eftir nokkra daga. Skrýtin tilfinning samt. Hlakka rosalega til að fá gesti...hver verður fyrstur??

Í gær horfðum við á 40 mín. langt nútímadansvideo í danstíma og ég var gjörsamlega að deyja úr hlátri inn í mér :D Hinir í bekknum voru fullir aðdáunnar. Skil ekki hvernig þeim getur ekki fundist fyndið að sjá fullt af fólki í hvítum þröngum satín göllum, hoppa út um allt og gera fulgahreyfingar. Tónlistin var líka mjög spes, einn og einn tónn í píanói og svona rigningarhljóð annað slagið. Maður heyrði "hopp" hljóðin í dönsurunum. Mér finnst nútímadans fyndinn. Og BARA fyndinn. Minnir mig alltaf á mig að reyna að dansa nútímadans....og það er fyndin sjón þó ég segi sjálf frá!! Við Þóra Magga og Sonja tókum eitt sinn svoleiðis dans upp á video og ég er einmitt að biðja Sonju um að senda mér það svo ég geti sýnt bekknum og haldið fyrirlestur um íslenskan nútímadans! Hahahaha....mér finnst það ógeðslega fyndið, en eins og einhver sagði: heimskur hlær að sjálfs síns fyndni..hmm...8|

Ég held að enginn hérna skilji húmorinn minn. Þegar ég segi eitthvað fyndið, er semsagt algjörlega að flippa og djóka (sleppi mér hreinlega), þá halda allir að mér sé alvara, verða geðveikt vandræðalegir og reyna að svara mér án þess að svo mikið sem brosa út í annað. Þegar ég svo segist hafa verið að grínast þá verða þau ennþá vandræðalegri. Dísess...hættið að vera svona kurteis og alvarleg! Þetta er fáránlegt! :klikk:

En já, allt í góðu samt. Erum að fara í leikhús annaðkvöld og ætlum út að borða fyrst, bekkurinn semsagt. Það er nice. Við erum öll að koma sem hópur, þið skiljið? Hópurinn er að myndast, norming er búið, storming er í aðsigi, hef meðal annars heyrt tvær mismunandi persónur tala illa um aðra í bekknum. Sem er gott, ef við erum að pæla í hópnum...hahahaha...var ég kannski eitthvað að misskilja fræðin? Guð, ég sakna vinnunnar. Og ykkar allra.

Góða nótt,

ykkar einlæga, og á stundum, fyndna, Elín.

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.09.2004 22:41:56 / ellas

Rétt símanúmer!!

Af gefnu tilefni ætla ég að hér að birta símanúmerið mitt í fullri lengd....  : 00353 87 6939219

Bæ í bili,

Elín :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2004 15:17:25 / ellas

Afmæli!

Ég er orðin 27 ára. Enn einhleyp og barnlaus ef frá er talinn hinn Chilenski fóstursonur minn Joel sem verður 8 ára á næsta ári.

Er á leiðinni niður í bæ að fagna úrslitum í "Gaa" sem írsk þjóðaríþrótt (einhverkonar sambland af fótbolta, handbolta og körfubolta, spilað á fótboltavelli). Írar eiga víst tvær þjóðaríþróttir, "Gaa" og "Hurley". Nú er ég búin að sjá þær báðar og líst vel á. Liðið hennar Mary vann svo við erum að fara að hitta pabba hennar og frændur á pöbb í miðborginni! Stuð!

Nóg í bili,

ykkar international student, sem er alls ekki nógu dugleg að nota tímann til heimalærdóms, Elín.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2004 21:48:21 / ellas

Lasin á laugardegi

Já, í dag er ég hundlasin. Er búin að vera að finna fyrir flensu í aðsigi í nokkra daga núna en alltaf hundsað hana. Í dag get ég það ekki, líður eins og skít. Ætli þetta hafi eitthvað að gera með aldurinn? Afmælisveikin? Nálgast náttúrulega þrítugsaldurinn óðfluga. Vakna örugglega með hrukkur í fyrramálið. Ég sem hef aldrei pælt í hrukkum á ævinni er farin að tala um þær núna. En í útlöndum er hægt að fá pillur við öllu. Fór í apótekið og keypti "UniFlu" töflur sem eiga að drepa niður flensuna. Trúi samt svo illa á svona töflur, vil helst láta líkaman vinna á þessu sjálfann, öll í náttúrulegum lækningum sjáiði. En kannski ég kaupi pillur til að forðast hrukkur á morgun. Nei. Held ekki.

Í dag fórum við Mary í verslunarleiðangur niður í "miðbæ" Blackrock (sem er í um 7.mín. göngufæri héðan) og keyptum í matinn. Við misstum okkur aðeins og keyptum meðal annars rjómatertu í tilefni afmælis míns, sem samt er ekki fyrr en á morgun. Þegar við vorum að borga föttuðum við að við gætum aldrei haldið á öllum matnum heim, við keyptum allt of mikið. Við gripum til þess örþrifaráðs að gerast smákrimmar. Keyrðum matinn út í búðarkerrunni og þóttumst vera að fara í bílinn okkar. Ég var mega stressuð þegar ég keyrði kerruna út frá bílastæðunum og yfir götuna. Ég þorði ekki að líta við en fannst eins og það væri stór og mikill verslunarstjóri hlaupandi á eftir okkur. Þegar við vorum komnar fyrir hornið og leiðin lá beint heim (5 mín. eftir eða svo) byrjaði sírenuvæl. Við frusum í sporunum og litum hvor á aðra með skelfingarsvip. Sírenuvælið nálgaðist óðfluga, það var augljóst að lögreglunni lág á.  Ég get ekki lýst því með orðum hvað ég var fegin þegar lögreglubíllinn keyrði framhjá okkur á fullri ferð! Hahahaha...það hefði verið fáránlegt að lenda í fangelsi fyrir að stela búðarkerru.

Núna er kerran á góðum stað inni í stofu og við ætlum að nota hana aftur. Kannski skilum við henni einhverntíman í lok vetrar.

Við átum tertuna í heilu lagi eftir að Mary söng afmælissöngin fyrir mig með írskum hreim. Hún heimtaði að fá að syngja hann þó að ég eigi ekki afmæli fyrr en á morgun. Það var mjög sætt af henni. Hún er algjör lúlla!

Kvöldinu er ég búin að eyða í vitleysu, eins og hangs á netinu, blogg og msn. Á að vera að lesa en hreinlega meika það ekki. Er með pínu heimþrá, væri til í að vera með íslenskum vinum í kvöld. En allt er í lagi, vona bara að flensan fari að láta sig hverfa.

Bless í bili,

E.


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2004 16:04:45 / ellas

Föstudagur!

Það er aftur komin helgi! Tíminn líður ótrúlega hratt hér í Dyflinni, sem er gott að því að það þýðir að ég hef það gott. Sem er gott. Ekki satt? Gott. Veit ekki hvað ég geri um helgina, það er ekkert plan eins og er. Hugsa að hún fari að mestu í lestur og lærdóm. En ég á jú afmæli á sunnudaginn svo það væri vel við hæfi að gera eitthvað skemmtilegt! Mary er búin að bjóða mér að fara með henni á pöbb og hitta pabba hennar og vini hans, og horfa á einhverja íþróttakeppni. Það hljómar vel! Ekta írsk stemmning. Ég hugsa að ég fari. Gæti orðið skemmtilegur afmælisdagur. Svo á hún afmæli viku á eftir mér þannig að við erum að spá í að halda sameiginlegt partý um næstu helgi. Jeiii....það verður vonandi stuð! Ég er að hugsa um að reyna að fá eitthvað af fólkinu úr bekknum til að mæta, við verðum að fara að hittast yfir bjór. Það myndast svo allt öðruvísi stemmning í hópnum þegar hann hefur fengið sér í glas saman, ekki satt? Ekki það að stemmningin sé slæm núna, en þið vitið....

Já, Kiddý, þetta var snilld! Ég hefði ekki trúað því sjálf að ég gæti klambrað saman sviðsmynd, en sko! Held samt að ég geri það ekki aftur ótilneydd ;)

Eftir að netið kom heim hef ég eytt töluverðum tíma í hangs og tjatt á msn-inu. Það er jafnvel hægt að segja að það komi aðeins niður á heimalærdómnum. Ég skil fullkomlega hversu auðvelt það er fyrir unglinga að hanga í tölvunni allan sólahringinn og gera ekkert annað. Ég þarf að setja mér reglur: "Elín, fyrst lestu þennan kafla, svo máttu tékka á msn í hálftíma"  Stundum brýt ég regluna sem ég er nýbúin að setja. Hehehe...ég er klikkuð!

Það gæti verið að við í bekknum færum til Parísar eftir áramót! Oui, oui, Je ne parle pas francais, en það er snilld því ég hef aldrei komið til France áður! Spennandi. Rauðvín, baguette og ostar! Hljómar vel, ekki satt? Jæja, þarf að fara að drullast til að lesa eitthvað um "Dauða höfundarins" og blabla Heyrumst síðar, Elín hin írska.

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2004 00:40:18 / ellas

Netið er snilld...og það er komið heim til mín!

Ég hef verið að bíða eftir þráðlausa netinu heim til mín síðan ég flutti til Dublin. Alltaf var búist við því "á morgun". Ég var í rauninni búin að gefa upp alla von um samband við umheiminn frá skrifborðinu mínu. Meira í rælni en af alvöru kveikti ég á tölvunni þegar ég kom heim úr leikhúsi um hálf tólf í kvöld. Og hvað haldiði...netið komið!!! Ég get ekki lýst því hvað ég er hamingjusöm! Ég sem var að deyja úr þreytu eftir erfiðan skóladag + mjög svo artí útgáfu af Hamlet fyrr í kvöld, er búin að hanga á netinu í 2 tíma og er ekki á leiðinni að hætta ;) Ég er meira að segja búin að horfa á fréttirnar á RÚV sem sýndar voru í kvöld, by the way: greyið fólkið á Ólafsfirði, hvað er að gerast?? Shi... Já, netið er algjör unaður...gerir heimþrána bærilegri!
Eins og ég sagði var dagurinn frekar erfiður. Langir fyrirlestrar að venju og lítið um hlé. Við fengum þó gestakennara, sviðshönnuð, sem lét okkur hanna svið fyrir "Waiting for Godot". Við áttum, hvert og eitt, að hanna okkar eigið svið fyrir leikritið, teikna það upp, gera skúlptúr af því úr kartoni og föndra karakterana líka. Ok, hljómar skemmtilega, en fyrir þá sem ekki vita þá er ég hreint út sagt ömurleg í föndri (minni á glösin sem ég málaði í klám og listaklúbbnum Kleópötru um árið....jakkkk). Einhvernvegin tókst mér að klúðra þessu saman, með hangandi tungli yfir sviðinu og ég veit ekki hvað og hvað. Kennaranum fannst meira að segja ástæða til að minnast sérstaklega á mína sviðshönnun, fannst tunglið eitthvað rosa flott og hélt greinilega að það væri djúp hugsun á bakvið það. Hehehe...kannski ég eigi framtíðína fyrir mér í sviðshönnun?!! 8)
Já, svo var það Hamlet sýningin í kvöld. Frekar kúl en mjög artí (sem fer stundum saman, ekki satt?). Leikhúsið er pínulítið, tekur um 50 manns í sæti. Leikararnir allir ungir (og nokkuð sætir) og leikgerðin vægast sagt sérstök. En leikstjórinn er ung stelpa sem var í náminu mínu í fyrra. Gaman að þessu. Fórum á pöbb eftir sýninguna og þangað komu leikararnir líka. Hefði átt að ná mér í Hamlet. Damn. Reyni það næst!
Góða nótt,
ykkar Elín.

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2004 11:05:07 / ellas

Frábærar myndir!

Takk Jón Þór fyrir frábærar myndir! Það er ekki laust við að ég fái heimþrá þegar ég skoða þær :S
En allt gott að frétta, ekkert sérstakt svosem. Vona bara að fólk sé almennt frískt og hresst og hugsi til mín við og við.

Hef þetta stutt í dag,
later,
E.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2004 15:37:52 / ellas

Sunnudagur og engin biturleiki!!!

Í fyrsta lagi: mér líður betur en síðast þegar ég bloggaði. Danstíminn reddaði miklu og svo gat ég meira að segja svarað nokkrum spurningum sem einn af kennurunum varpaði fram í tíma. Gamla góða bókmenntafræðin kemur til góðra nota! Vissi að ég þyrfti að nota hana einhverntíman ;)
Í gærkvöldi fórum við Mary og Jesse, sambýlingar mínir, út á lífið. Byrjuðum á því að fara á ágætis bar í miðbænum og fórum svo á einhvern "svaka svaka" næturklúbb. Þetta var hið skemmtilegasta kvöld. Ekki mikið meira um það að segja.
Dagurinn í dag hefur farið fyrir lítið. Er ekki enn byrjuðö að lesa en á eftir að lesa um 100 bls. um dans-greiningu....JEIIIII....!!!
Lífið í Dyflinni er allt að venjast og verða eðlilegra. Þegar ég vaknaði borðaði ég ekta enskan morgunmat; steiktar pylsur, beikon, tómata og lauk og mér fannst það æðislegt! Hugsaði með mér að þetta gæti ég borðað á hverjum degi...ég hef nefnilega verið í vandræðum með að finna mat sem mér líkar. Kaupi alltaf eitthvern óætan andskota. En svo hugsaði ég aðeins lengra með pylsurnar og fattaði að maður lítur örugglega ekkert allt of vel út eftir margra vikna át af steiktu kjöti. Fæ mér þetta einu sinni í viku kannski, á laugardögum eða sunnudögum.
Mikið létti mér í gær þegar í ljós kom að Andy (hommalegi drengurinn sem ég bý með) er tvíkynhneigður. Og hann er bara voða frjáls með það. Þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því að hjálpa honum út úr skápnum.

Nóg í bili,
takk fyrir hughreistandi orð elskurnar :)
Ykkar Elín.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.09.2004 18:58:22 / ellas

Skrýtin í skapi.

Ég er eitthvað skrýtin í skapinu núna. Dagurinn í gær var rosalega heví. Í fyrsta lagi eru tímarnir 1,5 – 2 klukkutímar hver og engin pása tekin á milli. Við vorum í tíma hjá Dr. Long (sem er deildarstjórinn hérna í Drama Studies Center, höfuðpaurinn ef svo má segja) og hann átti að vera á milli kl.10 og 12. Einhverra hluta vegna eru kennararnir hérna ekkert mikið að spá í hvenær tímarnir eiga að vera búnir og við vorum ekki búin fyrr en hálf 1. Sem þýðir að við sátum í 2 og hálfan tíma, og það var bara byrjunin á deginum. Við áttum eftir að sitja tvær aðrar tveggja klukkustunda kennslustundir sem drógust í 2 og hálfan tíma hvor. Deginum lauk svo með því að í gærkvöldi fórum við í leikhús, þar sem við auðvitað sátum í rúma 2 tíma. Bakið á mér er í rusli eftir allar þessar setustundir (fyrir þá sem ekki vita brákaði ég á mér rófubeinið í freestyle dansi um árið og er því frekar slæm í baki, frá rófu og upp að mjóbaki). Eftir leikhúsið fórum við á bar og töluðum um sýninguna. Ég stóð mig að því að vera alveg sjúklega pirruð út af öllum þessum leikhúspælingum og langaði mest til að annaðhvort a) fara heim að sofa, eða b) hella mig blindfulla og tala við eitthvað annað fólk en er með mér í skólanum og um eitthvað allt annað en leiklist. Og fyrsta vikan er ekki einu sinni búin...shit!!! Ég er kannski ekki á réttum stað í lífinu??? Fólkið í bekknum mínum hefur alveg sjúklega mikinn áhuga á öllu sem viðkemur leikhúsi...ég hélt að ég hefði það líka en öllu má nú ofgera. Maður þarf ekki að tala um þetta endalaust...ég meina, eftir hellaðan dag þar sem heilinn er gjörsamlega að steikjast og bakið í fokki, er alveg hægt að tala bara um sæta stráka, skó, prump eða hommaskap. Meika ekki endalaust af intellectual samræðum. Auk þess finnst mér ég bara sjúklega vitlaus að því ég þekki ekki helminginn af leikritunum eða höfundunum sem við tökum fyrir...en ég meina, ekki þekkja þau íslenska höfunda og leikrit!!!! Hahaha...ég er alveg í kastinu hérna. En þetta verður vonandi allt í lagi. Það er bara erfitt að þurfa að hlusta á alla þessa ensku, lesa allt á ensku og reyna að tjá mig á vitsmunalegum nótum um karakterlýsingu og stöðu áhorfenda, á ensku. Þetta hlýtur að koma allt saman. Ekki misskilja mig, fólkið í bekknum mínum er hvert öðru yndislegra. Mættu bara slaka aðeins á þessu gáfumannatali í frímínútum. En á morgun er ég að fara í fyrsta danstímann og það verður vonandi stuð. Þar get ég sýnt þeim hvernig íslendingar dansa freestyle og brjóta á sér rófubeinið!

Er að spá í hvað ég á að gera um helgina. Langar til að detta í það og hugsa um eitthvað annað en skólann. Alex, ítalinn sem ég bý með, er búinn að plana DVD kvöld hérna annaðkvöld. Hljómar spennandi... Hann er búinn að spyrja alla sambýlingana hvort við séum til í að hittast í stofunni og horfa saman á DVD. Æææiii það er voða sætt og góð hugsun á bakvið það sjálfsagt. Kannski ég smeygi einum, tveimur drykkjuleikjum inn á milli mynda og dreg þau á fyllerí! Eða hringi í Poggy og bið að koma með mér aftur á “Kaffibarinn” (Whelan´s).

Oh my god, mig langar eiginilega bara heim núna. Að vinna í Frosta og fara á Ölstofuna annaðkvöld. Það eru líka allir svo yfirmáta kurteisir hérna að það fer í taugarnar á mér. Maður má ekki mæta fólki á göngunum þá er sagt “Sorry” og alltaf þegar maður hittir einhvern þá segir hann “How are you doing?”. Maður má ekki opna hurðir sjálfur, það er alltaf einver kominn til að opna fyrir mann. Shit. Hvernig geta svona hlutir farið í taugarnar á mér??? Það er samt aðallega þetta “Sorry” dæmi sem ég meika ekki.

Blæ í bili elskurnar,
Ég læt ekki bugast af öllu þessu gáfaða og kurteisa fólki og held áfram skólagöngunni í Dyflinni.

E.

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2004 12:18:58 / ellas

"Það er leikur að læra..." Hver samdi þetta bull?!!

Fyrsti skóladagurinn búinn. Við erum 19 í bekknum og flestir lærðir leikarar, sumir leikstjórar eða með einhversskonar annan leikhúsbakgrunn. Fólkið er á öllum aldri, flestir samt svipað gamlir og ég. Það er einn kall sem er 65+, hann er alveg frábær gaur, mjög hress og skemmtilegur! Mér líst mjög vel á þetta, kennararnir eru góðir og flestir í bekknum virðast vera fínir. Þetta verður hinsvegar heví mikil vinna, mikill lestur er þegar hafinn og tímarnir fara í spjall um það sem við lesum heima svo maður kemst ekki upp með að sleppa því að læra heima því þá lítur maður út eins og fáviti. Ég er strax að fara að upplifa það núna í fyrstu vikunni....fór í bæinn með Jesse í gær til að leita að 3 leikritum sem við þurfum að vera búin að lesa og gera verkefni úr fyrir daginn í dag...en við fundum þau hvergi. Hann hefur lesið þau áður en ekki ég...kannast ekki einu sinni við þau! Shit, þetta verður fáránlegt á eftir. Hef reyndar lesið eitt af þremur en það er mjög langt síðan.
Fyndið, fyrsta skóladaginn (á mánudaginn), þegar allir voru að hittast í fyrsta skiptið, var ég alltaf að bíða eftir að sætu strákarnir í bekknum myndu mæta. Varð fyrir smá vonbrigðum...hehehe! En það eru 8 strákar held ég og 11 stelpur í bekknum og bara einn sætur af átta!!! En hann er líka mjög sætur. Reyni að negla hann við fyrsta tækifæri...nei, djók, segi nú bara svona. Hef ekki tíma til að hugsa um karlmenn núna, hugsa bara um listina...hahaha...!!! En þegar fyrsti skóladagurinn var búinn var okkur öllum boðið upp á hvítvín og rauðvín. Það er algjör snilld! Bekkurinn og kennararnir að drekka vín á mánudegi og allir orðnir frekar tipsý. Ég varð pínu vandræðaleg þegar einn af kennurunum var að spjalla við mig og spyrja mig út í leikhúslífið á Íslandi. Mér fannst ég eitthvað svo vitlaus. Fékk svona Bridgetar Jones tilfinningu. Held samt að honum finnist ég sæt, kannski ég endi bara með einum doktornum!!! Hahahaha.... en þá verð ég líka að vera dugleg að læra heima. Vá, hvað ég bulla endalaust. Þetta er ekki nokkru lagi líkt. Hélt að ég ætlaði að hætta að hugsa um karlmenn.

Verð að fara að læra, þetta gengur ekki. Get ekki beðið eftir að netið komi heim, nenni ekki alltaf að vera að þvælast þetta með tölvuna fram og til baka. Svo verður líka fínt að geta komist á msn-ið hvenær sem er...sakn sakn...

Bless í bili,
Elín írska.

PS: Andy, sá sem ég bý með, er greinilega hommi en ekki kominn út úr skápnum. Hann var að segja okkur frá konu sem hann var að deita í fyrrasumar. Hún er 42 ára (hann er 22) og fyrrverandi kona frægs veðurfréttamanns hérna í Dublin!!! Hahaha...mér finnst þetta algjör snilld. Á ég að reyna að hjálpa honum út úr skápnum? Hvað segið þið, hommavinir mínir? Eða á ég bara að láta þetta eiga sig?

PS: Fyrir þá sem eru að hugsa um að kíkja í heimsókn fyrir áramót: farið þið að pæla í flugmiðum sem fyrst, því fyrr, því ódýrara 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2004 13:14:33 / ellas

Sunnudagur

Helgin hefur verið fín. Nú eru komin nöfn á alla sambýlingana og mér líst vel á þau öll. Andy og Mary eru frá Dublin (Andy er alveg pottþétt hommi...fer ekki ofan af því...ekki heldur ofan á hann ef rétt reynist!). Alex er Ítalinn, Josie er frá Kanada og síðast en ekki síst, Jesse, ameríkaninn sem er að fara með mér í Drama Studies. Hann er voða indæll, vel upplýstur ameríkani sem hatar Bush og mér sýnist við fyrstu kynni að hann sé ekki hommi. Bara frekar sætur líka, hélt fyrstu 2 klukkutímana að hann væri aðalleikarinn í "American Pie" myndunum, hvað heitir hann aftur? Gæti reyndar verið hann....heitir hann nokkuð Jesse? En hann er allavega menntaður leikari og búr í Chicago. Hann stressaði mig alla upp þegar hann fór að spyrja mig út í hvaða bækur ég er búin að lesa fyrir skólann...þá mundi ég allt í einu að ég er ekki búin að lesa einn staf. Auk þess sagði hann mér að við værum líklega bara 14 að fara í leiklistina og írarnir sögðu að það væri mjög erfitt að komast inn í deildina. Shit 8| ég vona að ég sé ekki of vitlaus í þetta! Nei nei, það getur ekki verið. Þykist bara vera rosa artí og íslenskt náttúrubarn sem hefur ekki trú á lestri bóka fyrirfram. Oh my god...
En í gærkvöldi fórum við 4, ég, Jesse, Andy og Mary, út að borða og á pöbb hérna í hverfinu sem verður örugglega local pöbbinn okkar í vetur. Mjög góð tónlist (Scissors Sister meðal annars sem minnti mig á heimahagana og góð partý) og gott andrúmsloft.
Í morgun skokkaði ég aftur 3 km. og er svo að fara á pöbb að horfa á einhverja írska íþrótt (Hurling?!?!) það er víst úrslitaleikur í dag, voða voða keppni og enginn íri missir af því.

Bless í bili,
með stress í maganum kveð ég að sinni.

PS: Þið tónlistarlega vitru vinir; kannast einhver við band sem heitir "Jimmy Cake" og spilar instrumental funky dæmi?

PPS: Símanúmerið mitt er: +087 6939219. Endilega takið upp tólið og bjallið á mig eða skjótið eins og einu smáskilaboði yfir til mín! Þóra Magga, þessi elska, hringdi í gær, og það var yndislegt að heyra hennar hljómfögru rödd!

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.09.2004 11:09:56 / ellas

Það sem er öðruvísi...

Það eru nokkrir hlutir öðruvísi hér en maður á að venjast heima á fróni:

*Þegar það rignir safnast ekki ánamaðkar saman á gangstéttunum eins og heima, heldur sniglar. Risastórir sniglar út um allar gangstéttar maður lifandi. Ég fékk alveg hroll í iljarnar þegar ég var að labba heim úr búðinni í gær.

*Ég fór út að djamma í gær á "Kaffibar" þeirra Dublinarbúa. Þar mætir Íslandsvinurinn Damien Rice oft og iðullega, og þetta er svona hangout leikara og artí fartí liðsins. Svaka gaman. En við vorum mætt þarna kl.hálf tíu og ég var komin heim kl. 2. Sem þýðir að ég var vöknuð klukkan 10 í morgun, pínu þunn! Það meikar ekki sens að fara og fá sér þynnkumáltíð kl.10 um morgun.

*Eins og áður segir, fór ég á pínu djamm í gærkvöldi. En ég keypti mér ekki einn einasta drykk. Írsku strákarnir sem ég var með sáu um það.

*Ég fór út að skokka í garðinum sem er hérna rétt hjá og mér fannst það bara nokkuð gaman. Er að spá í að taka 3 km. aftur í dag. Verð sennilega komin í maraþonið um jólin.

Það er eflaust eitthvað fleira sem er öðruvísi en ég á að venjast. Það verður skráð niður næstu daga!

Heimilisfangið mitt hérna er:
E.S.
Room 3-3-5, Proby House Residences,
University College Dublin
Carysfort Avenue
Blackrock
CO. Dublin

E-mailið er:elins@itr.is eða elinsm@hotmail.com
Ég man ekki símanúmerið mitt eins og er, en kem því á síðuna um leið og ég get.

Over and out í bili,
Ella.

PS: Í morgun, þar sem ég lá í rúminu nývöknuð, heyrði ég í 5. sambýlingnum. Hann er ameríkani og er að fara í Drama Studies eins og ég. En ég er ekki búin að sjá hann ennþá...vona að hann sé sætur og ekki hommi!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2004 15:45:57 / ellas

Lengsta blogg í heimi!!

Ja hérna. Þetta er aldeilis skrýtið, maður lifandi. Ég er komin á heimili mitt í Dublin. Í þessu herbergi mun ég búa næstu 12 mánuðina. Það er ekki búið að tengja netið hér inn (það er alveg glatað..get ekki beðið eftir að komast á netið, msn, e-mail og allt það) þannig að ég er að “blogga” í word skjal sem ég ætla síðan að kópera yfir í bloggið!! Hehehehe...vona að það virki. Bara svo margt að segja sem ég vil ekki gleyma. Auk þess hef ég vægast sagt ekki mikið annað að gera hérna núna.

Ég kom semsagt í gær og ferðin gekk vel. Svaf ekki nema 2 tíma nóttina áður en ég fór. Var eitthvað mikið stressuð og skrýtin. Fór meðal annars að skæla fyrir framan fullt af ættingjum Jóns Þórs og Gumma í þrítugsafmælinu hans Jóns! Muna framvegis að kveðja ekki vini mína í fjölmenni  En þetta var allt í lagi, varð bara rosa sentimental þegar Ranna systir hans Gumma sagði: “Jiiii hvað þið eigið eftir að sakna hennar strákar”.

Kveðjupartýið í Mosó var algjör snilld. Dóri bróðir minn kom að sjálfsögðu suður til að spila og halda uppi taumlausri gleði eins og honum er einum lagið. Við tókum nokkur lög saman, írsk þjóðlög og færeyska ástarsöngva...hehehe... Auk þess var DJ Snæland öflugur og dansinn dunaði fram eftir nóttu. Nokkur skemmtiatriði voru flutt og ég fékk hland fyrir hjartað þegar Jón Þór, Hulda (sem átti stórleik), Anna Svava og Þóra Karítast ákváðu að segja vandræðalegar sögur af mér með undirleik Halldórs bró. En þessar elskur slepptu þeim allra vandræðalegustu (ótrúlegt en satt!!!) og þetta slapp allt fyrir horn.

Já, kom hingað í gær eftir langt ferðalag. Eða, ferðalagið tók allavega langan tíma þó að það sé alls ekki langt frá Íslandi til Írlands...minnsta mál í heimi að koma hingað í heimsókn  Allavega...Guðbjörg, þessi gullmoli, keyrði mig til Keflavíkur þaðan sem ég flaug til London. Þar hitti ég íslenska stelpu sem var að bíða eftir flugi til Portúgal. Þangað var hún að fara að gera ekkert sérstakt í engan ákveðinn tíma...spes...ég myndi ekki meika það, því eins og allir vita er ég með stresssýki á háu stigi. En við tjilluðum saman í 4 tíma. Það var mjög fínt að hafa einhvern til að hanga með. Sérstaklega þegar maður er með mjög litla þvagblöðru og 50 kg farangur á flugvelli. Ég býð ekki í það ef ég hefði alltaf þurft að troða farangrinum með mér inn á klósett þegar ég pissaði!

Fyrsta Ryanair flugreynslan mín var ágæt. Meika samt ekki svona þröngar flugvélar og skipulagsleysi. Maður á að velja sér sæti og troða handfarangrinum einhvernveginn í hólfin fyrir ofan sætin. Allt í rugli maður og enginn að pæla í hvort hlutirnir skemmist við troðninginn. Ég var alltaf að líta aftur fyrir mig, á hólfið þar sem tölvan mín var í kremju, og einu sinni sá ég að bandið á töskunni minni hékk út úr...arrgghhh..það fór ekkert smá í taugarnar á mér. En þar sem ég var alltaf að líta svona aftur fyrir mig, held ég að gaurinn sem sat þar hafi hugsað sér gott til glóðarinnar. Hann var allavega farinn að brosa voða sætt til mín í miðju flugi. Kannski hefur honum bara fundist ég eitthvað klikkuð. Ég er eitthvað klikkuð. Í flugvélinni var líka annar hver maður rauðhærður og ég dó úr hlátri inn í mér yfir því! Fannst eins og þetta væri bara þjóðsaga með rauðhærðu írana.
Ég tók taxa frá flugvellinum og bílstjórinn var alveg frábær! Ekta íri, spjallaði og spjallaði og sagði mér frá borginni. Við lentum í aðal traffíkinni, klukkan var hálf sex, og ég veit ekki hvað ég var lengi á leiðinni frá flugvellinum og hingað í Blackrock hverfið (nokkuð svalt nafn!). En að lokum fundum við Campusinn og það fyrsta sem ég sá var sætur strákur sem hjálpaði mér með farangurinn...híhíhí....ekki slæmt. Sá svo í morgun að hann vinnur hérna, sem er ekki slæmt heldur, að því þá á ég eftir að sjá hann á hverjum degi.
En íbúðin sem ég bý í er eiginlega ekki íbúð. Meira svona hótelherbergi myndi ég segja. Ég er með sér baðherbergi, sturtu og klósett og allt saman. Það eru 6 svona herbergi í einni álmu og eldhús og setustofa út í enda. Ég hef hitt 4 af 5 meðleigjendum mínum. Einn er frá Ítalíu, ein frá Kananda/Sviss, og tvö héðan úr Dublin. Þau virka öll mjög fín. Eitthvað segir mér að strákurinn frá Dublin sé hommi. Kallast þetta ekki “gay-radar”? Hann er ekki beint hommalegur (ef það er til), en það er eitthvað við hann...auk þess væri bara í hæsta máta óeðlilegt ef það væri ekki að minnsta kosti einn hommi í námunda við mig hérna  Hann er rosa fínn og ég hugsa að við eigum eftir að ná vel saman. Ég minntist á hvað mér finnst asnalegt að mega ekki hafa gesti hérna yfir nótt og hann var alveg sammála mér. Talaði um við myndum ekki hlusta á þetta og ég myndi sko algjörlega leyfa íslendingum að gista hjá mér. Hann getur meira að segja lánað mér bedda...hhahahahahha....snilld! Auk þess ætlar hann að koma með sjónvarpið sitt og DVD spilarann og hafa í setustofunni. Hann er algjör lúlli. Get ekki beðið eftir að fá sjónvarp hingað inn....svona er maður nú háður tækninni. Flestir sem ég hef hitt hérna á Campusnum eru í einhversskonar viðskiptafræði bledible. Hef ekki hitt neinn ennþá sem er að fara í Drama Studies en skilst að hér séu einhverjir slíkir. Fór í göngutúr í dag og fann húsið sem Leiklistardeildin er í...þorði ekki inn...var allt í einu feimin að hitta hana Hilary sem er ritari þarna og hefur verið í stöðugu meil sambandi við mig undanfarna mánuði. Ég var alltaf með eitthvað vesen sem hún þurfti að leysa fyrir mig. Kíki þangað á morgun.

Ég sendi honum Poggy sms áðan og við ætlum að hittast annaðkvöld! Jei..ég er svo spennt. Það er snilld að “þekkja” einhvern hérna sem getur sýnt mér pöbbana og allt það. Ferlega skrýtið að vera alveg ein á báti. Vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera í dag. En fór í göngutúr og út í búð að versla. Þarf reyndar að fara aftur á morgun, þetta var meira svona til að tékka á búðinni. Skólinn hjá mér byrjar ekki fyrr en á mánudaginn svo það verður kannski svolítið skrýtið hérna um helgina. Held að þetta verði allt öðruvísi þegar ég er búin að hitta krakkana sem eru með mér í leiklistinni. Gæti reyndar notað tímann og lesið fyrir skólann..nenni því ómögulega.


Jæja, læt þetta duga í bili, vona að allir hafi það gott!
Sakna ykkar allra,

Elín írska.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2004 15:43:40 / ellas

Komin til Dyflinar!

Sælt veri fólkið...þið yndislegu vinir sem ég sakna heví mikið núna...

Ég komst loksins á netið, þó ekki heima hjá mér (í fína hótelherberginu mínu) heldur í samkomusal í næsta húsi. Eftir að ég fattaði að það í morgun, að það er þráðlaust net hér, hef ég ekki mikið annað gert en að hanga á netinu. Ég gat signað mig inn á msn-ið í morgun, en svo þurfti ég að skreppa frá og þegar ég kom aftur komst ég með engu móti aftur inn á msn. Og það er að gera út af við mig....:evil: Vill einhver vera svo vænn að skrifa mér hvað ég get reynt til að connecta???? Er samt búin að reyna ansi margt...allt sem tölvan sjálf segir mér að gera...arrrghhhhh....þetta verður að lagast.
En já, ég hef ekki aðhafst mikið síðan ég kom í fyrradag. Bara skoðað mig um hér í hverfinu og komið mér fyrir í herberginu mínu. Skrifaði mjög langt "blogg" í word skjal í gærkvöldi sem ég ætla að reyna að koma hér inn sem fyrst. Hey, ég reyni það núna svo að ég sjái hvort ég þurfi að skrifa það allt aftur... ok...
sjáum til,

Ella ykkar írska.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2004 12:43:20 / ellas

Allt að gerast!

Jæja, mér fannst vera tími til kominn að skrifa eitthvað. Á laugardaginn verður kveðjupartýið mitt í Leihúsinu í Mosfellsbæ. Það verður vonandi mikið stuð. Býst við slatta af fólki og nokkrum skemmtiatriðum! Er meðal annars að flytja inn mega flottan tónlistarmann sem ætti að geta hrist upp í mannskapnum. Annars á ég eftir að gera slatta á þessum 6 dögum sem eftir eru á fróni. Hugsa rosalega mikið um að fara að pakka niður, það hlýtur að gerast á endanum! Peningamál eru alltaf leiðinleg, LÍN er ekkert alltof hjálpsöm..vona að það breytist næstu daga :$ Svo er ég komin með mitt klassíska "stress og álags" kvef og slappleika. Þetta virðist haldast voða vel í hendur: ef eitthvað mikið er að gerast eða ég fer í frí, þá verð ég lasin!!! Skemmtilegt!!!:evil: Bless í bili mín kæru, Ella hor.

» 1 hafa sagt sína skoðun