|
|
27.02.2005 17:36:17 / ellas
Í dag var landsleikur í rugby á milli Írlands og Englands. Ég
horfði á hann með slatta af írum hérna í húsinu og það var rosaleg
stemmning. Andrúmsloftið var spennuþrungið og blótsyrðin um breta
flugu á milli. Sem betur fer unni Írar og mikil var gleðin! Mér
skilst á landsleikir á milli íra og englendinga séu mest spennandi
og þeir sem skipta mestu máli fyrir íra að vinna. Ekkert skrýtið
þegar maður hugsar um söguna (as in history) frá árum áður...the
great famine og allt það. Helv... bretarnir! Annars er ekki mikill
rýgur á milli þessara þjóða hjá yngri kynslóðunum. Það er helst að
maður heyri eldra fólk tala um bretana eins og þeir séu djöflar í
mannsmynd...
Annar leikur var í dag sem ég horfði ekki á því ég fékk hótunar-sms
alla leið frá Íslandi, frá honum Haffa! Liverpool-Chelsea voru að
keppa í dag og ég veit ekki ennþá úrslitin í þeim leik, skilst að
það sé framlenging í þessum skrifuðu orðum og staðan 1:1. Kannski
ég ætti bara ekkert að vera að horfa á Liverpool leikina, þeim
virðist ganga betur þegar ég læt það vera!
Jamm...þetta voru íþróttafréttir dagsins í boði Elínar! Það mætti
halda að ég væri orðin einhver íþróttanörri en þetta er allt saman
svo rótgróið í menninguna hérna að maður gjörsamlega sogast inn í
þetta!
Er að fara að hjálpa Helen vinkonu minni og bekkjarsystur með
dansinn sinn því hún þarf að sýna hann á morgun. Eins og allir vita
er ég mjög góður choreographer...hahaha...og þess vegna er krafta
minna óskað í nokkrum dansverkum hjá bekkjarfélugunum mínum! Ég hef
enn viku til að klára minn dans, sýni ekki fyrr en 7. mars! Thank
god!
Bless í bili,
ykkar Elín.
PS: Enn er msn í rugli og enginn virðist geta bent mér á
lausnir...er alveg að verða klikkuð á þessu...
»
26.02.2005 00:21:24 / ellas
Ég er við það að missa vitið vegna MSN leysis. Það hefur ekki
virkað hjá mér í næstum 2 vikur og fráhvarfseinkenni eru farin að
gera verulega vart við sig. Ég fór og talaði við fólkið hérna í
móttökunni hjá mér en þau vita ekki rassgat og gátu ekkert hjálpað
mér. Einhver benti mér á að downloada msn-inu aftur, ég gerði
það... en nei nei ekkert virkar. Ef einhver þarna úti getur
aðstoðað mig er það vel þegið.... Dóri bróðir? Einhverjar
hugmyndir?
Annars er allt bara frekar fínt og flott þessa dagana. Mikið um
leikhúsferðir og svona gaman. Er samt eitthvað með pínu heimþrá,
örugglega að því ég hitti alla lúllanna um síðustu helgi! Mikið var
það gaman! Svo er þetta MSN mál ekki að hjálpa...
Föstudagskvöld og við Zach (áður þekktur sem Sæti) sátum inni í
eldhúsi og lærðum. Við þurfum að skila af okkur vinnubókum í dansi
í næstu viku. Það sem við hefðum átt að gera er að skrifa í þær
samviskulega jafnóðum og við unnum verkin, en maður lærir víst
seint af mistökunum (eða jafnvel aldrei!) og þess vegna erum við
flest í bekknum í rassgati með bækurnar okkar núna að reyna að
bulla eitthvað um allt sem við höfum gert síðan í
september..hahaha..þetta er nú meira ruglið! Gekk ekki betur en svo
að eftir um 2 klukkustunda vinnu ákváðum við að slá þessu upp í
kæruleysi og fara í partý til einnar sem er í doktorsnámi hérna.
Við þekkjum hana lítið sem ekkert, en hún var búin að bjóða okkur
fyrr í vikunni. Þegar við mættum á svæðið voru allir klæddir upp
eins og sjóræningjar! Ég gleymdi því smáatriði sem hún minntist á
þegar hún bauð okkur. Annars var þetta hið mesta rólegheitar partý.
Frekar alþjóðlegt, frakkar, þjóðverjar, írar, bandaríkjamaður og
íslendingur. En við kunnum ekki nógu vel við okkur þar sem við
þekktum engan og stemmningin var eitthvað spes þannig að við létum
okkur hverfa eftir klukkutíma! Og hér er ég að blogga! Svolítið
sad!
Á morgun er eitthvað svaka Brecht dæmi í Project leikhúsinu. Við
í bekknum förum fyrst á einhverjar umræður og svo á leiksýningu
eftir á. Það verður vonandi gaman. En vegna þessa getur Bibs ekki
komið um helgina og það er ömó því við erum bæði með cold turkey að
því við erum búin að vera að eyða svo miklum tíma saman undanfarið!
En hann er að vinna á mánudaginn og alla næstu viku. Ég ætla
sennilega að fara til New Bridge um næstu helgi...vonandi bara á
fimmtudaginn...
Jæja, nóg í bili
munið MSN-vandamálið ef þið hafið einhverjar hugmyndir...
E.
»
24.02.2005 00:18:39 / ellas
Já já, kom frá London í gærkvöldi og
var í skólanum í allan dag og leikhúsi í kvöld svo enginn
tími hefur gefist fyrir blogg þartil núna!
Ferðin var algjör snilld í einu orði sagt! Við vorum mætt á
flugvöllinn í Dublin um hádegi á laugardag og ég var uber hyper
einhverra hluta vegna (ósofin og vitlaus!) en Bibs hinn
rólegasti. Flugið til London gekk vel, lítið var um hristing og
önnur leiðindi en því miður sátum við ekki við glugga því við vorum
svo sein að koma okkur út í vélina (hjá Ryanair velja farþegar sér
sæti þegar þeir koma um borð). Ég var í því að spyrja Bibs hvernig
honum liði og hvort hann væri stressaður, en hann var pollrólegur
og ekki á honum að sjá að þetta væri hans fyrsta flug! En ég sá þó
votta fyrir spennusvip í munnvikunum í flugtaki og lendingu...
Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir á hostelinu í Earls
Court fórum við "heim til" Jóns Þórs, Gumma og Kristjáns Freys, eða
þangað sem þeir gistu í 15. hæða háhýsi í Putney Bridge sem líkja
má við höll. London celeb úr vinahópi Jóns Þórs á íbúð þarna á 12.
hæð með útsýni yfir megnið af borginni og ánna Thames. Þetta var
visst menningarsjokk fyrir mig en algjört menningarsjokk fyrir Bibs
sem hafði aldrei á ævinni séð svona byggingu hvað þá farið inn í
hana. Þarna eyddum við kvöldinu með strákunum og Heló og Bibs var
vel tekið! Aðallega var Valdi duglegur að tala við hann, svo mikið
á stundum að enginn annar komst að..hahaha... En ég fékk að heyra
það margoft í ferðinni hvað ég ætti frábæra vini (frá Bibs) og
frábæran kærasta (frá hinum!) svo að ég get ekki verið annað en
ánægð!
Á sunnudeginum vöknuðum við seint. Fórum samt á Tate Modern
safnið og röltum um í rosalegum kulda og snjókomu á köflum. Um
kvöldið höfðum við það kósý heima á hostelinu og nenntum ekki
neinu!
Mánudagurinn var tekinn í bæjarrölt. Aðallega var þó farið í
hljóðfærabúðir en afar fáar fatabúðir (sem betur fer er ég að fara
aftur til London í mars og þá bara með stelpum....fatabúðirnar bíða
þangað til þá!!). Um kvöldið voru síðan tónleikarnir sem við öll
biðum eftir með eftirvæntingu! Reykjavík steig á stokk á
sviði Marquee á Leicester Square kl. hálf tíu....og þvílíkir
tónleikar! Þeir hafa oft verið góðir en þarna voru þeir frábærir
Ég var afar stolt að geta knúsað þá alla sveitta og sæta eftir
giggið og fólk virtist vera að fíla þá mjög vel. Staðurinn var
alveg kjörinn fyrir tónleika eins og þessa. Drukkið var óhóflega
mikið magn af bjór og að lokum ultum við inn í taxa sem skilaði
okkur heim á hostel...
....eins og allir vita sem hafa verið á hosteli eða hóteli þarf
maður að tékka sig út á ákveðnum tíma. Og yfirleitt er sá tími
fáránlega snemma fyrir fólk eins og mig. Á þriðjudagsmorgninum
áttum við að tékka okkur út klukkan 11. Það var klukkan hálf eitt
sem Elín og Frank Butler komu sér niður til að tékka sig út með
stírurnar í augunum. Sem betur fer var gaurinn í lobbýinu frekar
líbó og lét okkur ekki borga aðra nótt! Við eyddum klukkutíma á
kaffihúsi og fórum svo út á flugvöll þar sem förinni var heitið
aftur heim til Dublin. Myndir frá ferðinni er hægt að sjá á
myndasíðunni undir heitinu "London"....verð að fara að læra að gera
linka...nenni því bara ekki!!!
Segi þetta gott í bili, verð að fara að sofa....
góða nótt,
E.
PS: Sá Liverpool vinna leik í gærkvöldi, Leverkusen frá
Þýskalandi 3:1 minnir mig... það afsannar kenninguna mína síðan um
daginn. Reyndar horfði ég bara á hann með öðru auganu og var að
læra með hinu en Bibs horfði að sjálfsögðu fullur
eftirvæntingar!!
»
18.02.2005 13:49:12 / ellas
Fór í leikhús í gær, fyrsta leikhúsferðin eftir jól og kominn
tími til! Þetta var alveg virkilega hressandi sýning í Abbey,
gamalt írskt leikrit, melódrama eins og það gerist best! Leikritið
heitir Shaughraun og er eftir Dion Boucicault. Er um
írska sveitastúlku sem verður ástfangin af enskum liðsforingja sem
handtekur bróður hennar, og vin þeirra, Shaughraun, sem hjálpar
honum að sleppa úr fangelsinu... Írsk tónlist og dansar út í gegn,
mikið stuð og sjúklega flott sviðsmynd og búningar. Ohhh ég er
alveg sjúk í að leika í svona leikriti...!!! Það er ekki til meira
stuð en írsk tónlist og river dansar...í alvöru!!!

Eftir sýninguna fórum við á pöbb í næstu götu.
Marie, casting director í Abbey og bekkjarsystir mín, var með í
för, og því var rosalega gaman að allt castið úr sýningunni kom á
pöbbinn og við gátum spjallað við þau. Ein þeirra minnti mig
rosalega á vinkonu mína Þóru Karítas þegar ég sá hana á sviði
(þessi í græna kjólnum) og hún minnti mig enn meira á hana þegar
hún kom á pöbbinn. Sami stíll yfir þeim. Það fyndna var að hún kom
að tala við mig og sagðist viss um að við höfum hisst áður, hún
kannaðist svo við mig. Ég hugsaði mig um í nokkrar sekúndur og var
að pæla hvort það gæti verið að hún væri Þóra... en nei, hún
sagðist heita Fiona. Fríkað sko! Þau vildu endilega fá okkur með í
karókí en Marie vildi fara heim og ég við Conor kunnum eiginlega
ekki við að fara með bláókunnugu fólki í karókí, þrátt fyrir að ég
er viss um að ég hefði heillað þau upp úr skónum með minni
blíðfögru röddu...hahahaha...
Annars er ég nú bara að gera mig til fyrir London,
þvo föt og leita að passanum mínum! Bibs kemur á eftir og kvöldið
fer sennilega í að róa hann fyrir flugferðina... Sögur frá London
munu birtast á síðunni eftir helgi, en þangað til bið ég ykkur vel
að lifa og ganga hægt um gleðinnar dyr!
Love u,
E.
»
16.02.2005 18:07:19 / ellas
Já mér er mikið létt þar sem ég var með fyrirlesturinn um
franska kóreógraferinn í morgun og gekk bara ágætlega. Var samt
pínu lost í spurningaflóðinu sem fylgdi á eftir en þannig er það nú
oftast! Heilinn heldur að hann sé búin að vinna þegar
fyrirlestrinum er lokið og setur á pásu...veit ekki hvort ég er ein
um þetta, vona að einhverjir aðrir kannist við þetta?? Einhver?
Nei annars var þetta ekki svo slæmt, ég náði að bulla mig út úr
þessu flestu. Enda er þetta óttalegt bull þessi Performance Art, er
það ekki? En eitthvað skemmtilegt við það samt.
Þið munið eftir myndatökunni sem ég talaði um um daginn? Hér
sjáiði afraksturinn:

Sko ef þið horfið á tölustafinn "1" þá ættuð þið að
sjá mig rétt fyrir ofan miðju...hahahaha... en til að gera ykkur
þetta auðveldara er hérna slóð á myndina í full screen: http://www.ucd.ie/150/pics/news/screen150-big.jpg (verst
að ég kann ekkert að gera svona flottan link úr þessu, þannig að ég
birti bara alla slóðina..frekar glatað, ég veit!). Þið komist ekki
hjá því að sjá mig á stóru myndinni, ég er í gallapilsi og nr. 5 í
röðinni ofanfrá í tölustafnum "einum". Já, en hvað um það, nóg um
mig! Hvernig hafið þið það?
Nú þegar maður er orðin fræg ljósmyndafyrirsæta í
Dublin þá hlaðast inn tækifærin. Mér hefur m.a. boðist að
leika í auglýsingum, írskri sápu og vera nýtt andlit vissrar
kartöflutegundar. Það er erfitt að velja og hafna, sérstaklega
þegar maður er Vog eins og ég, en maður verður að gera það í þessum
bransa. Ég held að ég velji kartöfludæmið, held að möguleikarnir
séu bestir þar því það á sennilega að selja kartöflurnar á
erlendan markað og því aldrei að vita nema fleiri tækifæri bíði
handan við hornið...
Já einmitt. Ég veit ekki, ég er rosa spennt fyrir
London, en eitthvað pínu stressuð líka! Finnst eitthvað voða
skrýtið við tilhugsunina um að blanda mínum tveimur lífum saman,
hinu írska lífi með Bibs og hinu íslenska með strákunum mínum! Veit
ekki hvað það er, kannski er ég bara klikk..sennilega! Vona bara að
það verði gaman, efast reyndar ekki um það....
Þetta eru hugrenningar mínar í dag. Léttir,
tilhlökkun, spenningur, pínu kvíði og smá áhyggjur (annað væri nú
óeðliegt í mínu tilviki!), en aðallega bara hamingja!
Bless í bili,
E.
»
13.02.2005 23:40:17 / ellas
Var að koma frá Newbridge og klukkan að ganga miðnætti. Helgin
var góð en leið allt of fljótt. Tíminn líður bara almennt allt of
fljótt ef út í það er farið! Þessvegna er um að gera að reyna að
njóta augnabliksins og að taka lífinu ekki of hátíðlega. Ekki satt
mín kæru?
Fannst ég bara verða aðeins að blogga þar sem ég vil halda mínum
dygga lesendahóp við efnið. Var ekkert búin að blogga síðan á
fimmtudag og sunnudagur í dag, ekki nógu gott! Var að lesa um
Þorrablót Valda og Immu á blogginu hennar Kiddýar. Vá hvað þetta
hlýtur að hafa verið gaman...ótrúlega skemmtilegt hvað mikið er
lagt í skemmtiatriðin, ohhh ég á svo hæfileikaríka og yndislega
vini. Fékk pínu heimþráarkast þegar ég las um þetta en fattaði svo
að ég er að fara að hitta strákana um næstu helgi...ohhhh það
verður geggjað! Bibs er orðinn sjúklega spenntur og ég get ekki
beðið eftir að fara með honum í flugvélina og sjá hvernig hann
verður...!!!
Að lokum, tvær myndir síðan um helgina...

Ekki alveg nógu góð af mér samt, en eitthvað svo krúttleg!
Glöggir lesendur taka kannski eftir því að Bibs er í Liverpool
treyju og by the way, Liverpool tapar öllum leikjum sem ég horfi á
svo planið er að horfa ekki á næsta leik til að sjá hvort þeir
vinni. Ekki það að ég sé alltaf að horfa á fótbolta, en það er
ótrúlegt hvað maður sekkur í stemmninguna hérna og ég get sagt
ykkur að það er ekki gaman þegar Liverpool tapar...hahahaha!!!!

Hahahaha...bara varð að láta hana fljóta með...myndin er tekin í
morgun og ég er sjúklega mygluð og þunn! Gott að geta gert grín að
sjálfum sér... 
En nú verð ég að fara að sofa...dans í fyrramálið og ég bara
rétt búin að semja byrjunina!
Góða nótt og munið að lífið er oftast nær gott, tíminn líður
hratt og augnablikið er stutt! Voðalega háfleygt svona í lokin,
síðan heitir nú einu sinni "Speki Elínar".
E.
»
10.02.2005 23:44:01 / ellas
Ég er svo hamingjusöm! Það eru svo skemmtilegir og
hressandi tímar framundan. Fer til London eftir rúma viku,
eins og margt oft hefur komið fram, að hitta Reykjavík og
kynna Bibs. Þann 9. mars kemur Eva mín og verður til 15. Þann 17.
mars fer ég aftur til London, í þetta skiptið með bekknum mínum! Í
apríl stefnir dísin hún Þóra á Dyflinarferð og nýjustu
gleðifréttirnar og bara til að toppa næstu vikur og mánuði:
snillingarnir mínir úr Frosta, Gísli, Haffi, Eva, Jón Yngvi og
Gummi, eru búin að panta far til Dublin í lok mars!!! Úúúúú
ég er að springa úr gleði!!!

Hér má sjá hluta af Dublinarförunum í góðu geimi í
Borgarfirðinum...ahhh snilld!
Auðvitað er allt brjálað að gera í skólanum líka, en ég byrja
akkurat í 3ja vikna fríi daginn sem Eva kemur, mjög hentugt.
Skólinn byrjar svo aftur þegar Frostalingarnir fara. Snilld! Þangað
til verð ég að vera dugleg, allt á fullu. Er meðal annars um þessar
mundir að semja dansverk! Það er jafn fyndið og það hljómar! En
mjög gaman. Mig langar reyndar bara að dansa ballet eftir að hafa
horft á óhemju mikið magn af balletvideoum undanfarið. Auk þess
held ég að ég sé með meðfædda hæfileika til að dansa ballet, er svo
létt á mér og liðug eitthvað. Reyndar er ég örugglega bara sjúklega
góður dansari í hvaða dansgrein sem er, hvort sem við erum að tala
um nútímadans eða klassískan ballet. Verkið mitt verður samt meira
í anda nútímadanss. Notast við ljóð eftir Nínu Björk Árnadóttur sem
heitir "Birtan er of skær fyrir dimmufuglinn" til að búa til
dansinn. Reyni að mynda þetta á video til að geta sýnt ykkur
árangurinn...hahahahaha...
Er með fyrirlestur á miðvikudaginn um franskan kóreógrafer sem
heitir Jerome Bel. Horfði á eitt af verkunum hans á video í
gær. Allsbert fólk að krota með varalit á líkama sína. Verkið
endaði með því að þau pissuðu á gólfið og notuðu hlandið til að
þurrka af krot sem þau höfðu áður skrifað á vegg. Þetta kallast
Performance Art og er rosalega mikil list. Í alvöru. Við erum að
tala um að fólk heldur ekki vatni (né hlandi, ef út í það
er farið) yfir þessu, þvílík snilld sem þetta er. Stundum er
ég alveg utangátta í þessum listaheimi og skil hvorki upp né niður.
Held samt að ég sé alveg ágætlega listó! Það verður forvitnilegt að
sjá hvernig fyrirlesturinn verður...

Þetta er snillingurinn Jerome Bel!
Ætla til New Bridge á laugardaginn og verð fram á sunnudag. Get
ekki farið fyrr því það er kreisý að gera. Auk þess er Bibs að
vinna mikið þessa dagana til að hafa efni á að borga allt fyrir mig
í London...hahaha, nei djók!
Góða nótt í bili,
ykkar ánægða Elín.
»
09.02.2005 21:03:02 / ellas
Jæja já! Mér sýnist við Dóri bróðir verða að taka áskoruninni og
reyna að komast sem fulltrúar Íslands í Eurovision á næsta ári!
Ekki annað hægt þegar svona margir þrá það Þetta er meira að
segja orðið að umfjöllunarefni á vefmiðlum ýmiskonar, til dæmis á
nýjasta og ferskasta bloggi þessa dagana: Kiddýarbloggi (sjá
tengil). Dóri minn, farðu að byrja að semja slagarann!
Í gær fórum við Louise í myndatöku vegna 150 ára afmælis
skólans. Ég fékk bréf fyrir um mánuði þar sem ég var spurð hvort ég
hefði áhuga á að taka þátt í "photoshoot and reception" þar sem ég
er international student og það er verið að fagna afmæli skólans.
Mér var boðið að taka vin með mér svo við Louise ákváðum að skella
okkur. Klukkan hálf sex vorum við, uppáklæddar í pils og háhælaða
skó, staddar í leikfimisal ásamt fjöldanum öllum af alþjóða
nemendum sem flestir voru að koma beint úr skólanum og ekkert fínir
í tauinu! Við þurftum að standa í sömu sporunum í 45 mín. að því
það var verið að búa til töluna 150 úr öllum sem voru
viðstaddir. Louise var ekki skemmt og sá mikið eftir að koma því
við héldum að þetta væri svona fínt kokteilboð með ljósmyndara sem
tæki myndir af gestunum að drekka vín. Að klukkustund lokinni var
athöfnin færð yfir í annan og viðkunnalegri sal þar sem vín og
pinnamatur var á boðstólnum. Þar var líka spiluð lifandi írsk
tónlist og var bara voða fín stemmning. Ég minglaði meðal annars
við lítinn mann frá Víetnam. Við höfðum samt ekki mikið að tala um
svo ég svona lét mig hverfa úr hans augsýn ansi fimlega! Slóvanskur
nörd, og ég er að tala um nörd eins og maður sér í bíómyndum,
reyndi við mig og nice, but not hot, þjóðverji með skalla reyndi
líka við mig. Veit ekki alveg hvað það er, en svona gaurar virðast
heillast að mér. Ekki að ég sé að kvarta sko, væri samt alveg gaman
ef svölu gaurarnir myndu reyna við mig annað slagið! Gott að Bibs
skilur ekki íslensku...hahaha...ég að röfla um að ég vilji láta
reyna við mig! Hann er samt svalur, minnir að ég hafi reynt við
hann en ekki öfugt..ekki satt Hulda??
Minna en 2 vikur í London! Hlakka svo til að hitta gauarana mína
alla og Þóru litlu K. Hlakka líka til að kynna Bibs fyrir vinum
mínum og öfugt. Vona að það verði stuð og gaman! Var að bóka far
til London í mars líka, bekkurinn er að fara í leikhúsferð. Er pínu
spæld að við förum ekki til Parísar því ég hef aldrei komið þangað,
en svona er það nú, fer bara þangað einhverntíman seinna.
Fyndið með skoðanakönunnina, Máttur söngleikja var sko
algjörlega grín, eins spurningin um Ísland sem land tækifæranna. Í
rauninni eru bara tveir alvöru valmöguleikar, og það eru einu
valmöguleikarnir sem hafa ekki fengið eitt atkvæði!
Hahahaha....hljómar ekki nógu vel fyrir mig Verð að fara að
finna eitthvað út úr þessu sem fyrst...
Bless í bili,
ykkar Elín.
»
06.02.2005 20:57:29 / ellas
Í staðinn fyrir að sitja sveitt yfir verkefninu sem ég á að
skila á morgun hef ég legið upp í rúmi og horft á sjónvarpið meira
og minna í allan dag! Þetta er það sem Bibs óttaðist þegar hann
lánaði mér sjónvarpið, en ég er alltaf mjög sannfærandi þegar hann
spyr mig hvort það trufli lærdóminn og segi "Neihei, síður en
svo". Segi það nú ekki alveg, hef gripið í tölvuna við og við,
skrifað 30 orð í einu, kíkt á msn og aftur að sjónvarpinu. Verslaði
reyndar í matinn, þvoði tvær vélar og eldaði mér pasta! Eins og
sönnum húsmæðrum sæmir! Nú að ganga 9 hef ég beislað mig niður við
skrifborðið, slökkt á sjónvarpinu og stend ekki upp fyrr en
verkefninu er lokið... Þess vegna er ég að blogga
núna...hahaha...að því ég get ekki staðið upp og horft á
sjónvarpið...verð að gera eitthvað annað en þetta fokkans verkefni!
Gengur hægt og bítandi.
En já, ástæðan fyrir því að mér fannst ég þurfa að blogga er sú
að í sjónvarpsglápi mínu sá ég alveg ótrúlega fyndna version af
Idolinu. Hið írksa Idol heitir "You are a star" og sá sem vinnur
keppir fyrir hönd Írlands í Eurovision. Í dag eru 7 keppendur, eða
lið, eftir, hvert öðru hallærislegra...hahahaha! Ég lá í
"Bakergroove hrolli" fyrir þá sem muna eftir þeim þáttum... Það er
svona þegar maður sér eitthvað ógeðslega hallærislegt og fær
aumingjahroll. Nema hvað, þarna var meðal annars svona
stelpugrúbba, fjórar stelpur með gítara og hvað eina, ógó halló
þegar þær sungu Beach Boys. Systkini, rauðhærð, ekta írsk, sem
sungu My Girl... guð ég vona að við Dóri bróðir séum ekki svona
hallærisleg...grunar reyndar að það geti verið þegar ég hugsa til
kveðjupartýsins míns...úúffff....annar "Bakergroove hrollur" í
aðsigi!!!! Hahahahaha.... Annars hlakka ég til að sjá
hver dettur út í kvöld, verð því að kveikja aftur á sjónvarpinu
eftir hálftíma..hmmm....
Búin að láta nýja skoðanakönnun og vona að þið svarið henni
samviskusamlega. Er í vandræðum með að velja efni fyrir
mastersritgerðina.
Jæja....verð að læra.....
KNÚS,
E.
»
05.02.2005 14:51:09 / ellas
Náttúrudagurinn í gær var mjög góður. Við, Louise og Jesse,
eyddum um 4 tímum í Glendalough, gengum um svæðið og spiluðum
baseball. Það er mjög fallegt þarna og áhrifamikið einhvernvegin.
Maður á auðvelt með að ímynda sér munkana þarna í gamla
daga, haldast í hendur og sprangandi um á nærbuxunum...
haha..nei ekki alveg kannski, en stemmningin er góð og
staðurinn hefur róandi áhrif. Þarna er mikið fuglalíf en eins
þrífast annarskonar skepnur þarna, til að mynda sáum við
pönkararollur, með bláar doppur á bakinu og ég stóðst ekki mátið að
taka mynd af þeim!

Eftir útivistina héldum við heim til Louise, elduðum góðan mat,
drukkum gott vín og spiluðum Scrable. Já, á ensku. Gekk bara nokkuð
vel og þetta var ágætis æfing!
Tók nokkrar myndir en Louise tók fleiri svo þær birtast á
myndasíðunni næstu daga. Annars var ég að láta fleiri myndir síðan
í partýinu áður en ég fór út aftur um jólin, endilega tékkið á
ruglinu undir möppunni "síðustu jól"! Frekar skondnar myndir!
Nú verð ég að byrja á verkefni fyrir mánudag. Veðrið er bara svo
mikil snilld í dag, sól og stilla, alveg ekta svona
páskaveður...þið vitið? Maður getur varla verið inni... Talandi um
páskana, mig langar svo að vera á Ísafirði þá, en maður getur ekki
verið allsstaðar. Ísafjörður er staðurinn til að vera á yfir páska,
það er bara svo einfalt. Sérstaklega núna þar sem "Aldrei fór ég
suður" er komið til að vera! Kúl!
Að lokum ; til hamingju með litla kútinn elsku Rúna mín og Öddi.
Get ekki beðið eftir að sjá hann með berum augum, hann er algjört
yndi á mynd (i) unum!! Haha rímar. Knús til ykkar litla
fjölskylda.
Bless í bili,
E.
»
02.02.2005 19:27:58 / ellas
Úfff... síðustu dagar hafa verið bissý. Skólinn tekur á,
verkefni hlaðast inn sem og allskyns skemmtilegar uppákomur,
leikhúsferðir, fyrirlestrar ofl ofl.
Fór samt í bæjarferð í gærdag og keypti mér allsvakalega svöl
kúrekastígvél, brún að lit. Vappaði um bæinn og dúllaði mér, mikið
var það gaman...hehehe...
Á föstudaginn ætlum við Louise og Jesse að fara til Glendalough
sem er svona gamall helgur munkastaður í Wicklow sýsly, mikill
túristastaður reyndar, en ég hef aldrei komið þangað og það ku vera
ótrúlega fallegt. Fjöll og vatn og svona. Get ekki beðið eftir að
komast út í nátturuna, ég er jú svo mikið náttúrubarn! Svo ætlum
við að borða heima hjá Louise og gista, koma svo heim á laugardag.
Þá hef ég laugardag og sunnudag til að skrifa verkefni sem ég þarf
að skila á mánudag. Svo þarf ég að fara að byrja á næsta
fyrirlestri sem er um einhvern franskan kóreógrafer sem ég veit
ekkert um, spennandi... nenni þessu varla samt! Langar bara að hafa
gaman! Það sem er mest stressandi núna er að ég þarf að fara að
ákveða efni fyrir mastersritgerðina. Er með nokkrar hugmyndir en
get ekki ákveðið mig. Ljóstra þessu upp bráðlega. Þetta verður
vonandi snilld..haha!
Eva yndi kemur í heimsókn til mín í mars og það verður svoooo
gaman. Þóra Margrét lúlla kemur í apríl og það verður ekki síður
gaman! Vona að Frostalið sé ekki að koksa á Dublinarferð, þið eigið
ekki eftir að sjá eftir því að koma elskurnar! Hugsið bara: Temple
Bar, írsk lifandi tónlist, flottar búðir, Guinnes og umfram allt;
lellan ykkar í öllu sínu veldi!!! Engin afsökun fyrir að koma
ekki... hana nú!

Dublin að næturlagi...rómó og fallegt!!
Nóg í bili,
E. xxx
»
|
|