|
|
30.04.2005 20:00:37 / ellas
Það er laugardagskvöld í Dyflinni og ég er hin rólegasta í
tíðinni. Var frekar dugleg í dag og kláraði næstum fyrri
ritgerðina, þá sömu og ég var að skrifa síðast þegar ég bloggaði. Á
bara eftir að vinna aðeins í lokaorðunum og nenni ekki meiru í
kvöld. Ætla að gera það á morgun. Svo á mánudag hefst lestur fyrir
næstu ritgerð sem er um "Crisis of the individual" og "Postdramatic
theory". Afar spennandi. Ég ætti að vera full fróðleiks um vandamál
einstaklingsins...hahaha 
Ferlega fúlt að Gargandi snilld er ekki sýnd í Dublin
heldur í Edinborg... smávægilegur ruglningur í gangi hjá Rúnu! Ég
hefði svo verið til í að fara í bíó og hitta Ödda og fleiri
íslenska poppara í kvöld. Í staðin hef ég hugsað mér að horfa á
aðra bíómynd, ekki síðri, á DVD. Bridget vikonu mína Jones, þó að
ég hafi séð hana oftar en einu sinni. Hún klikkar aldrei!
Á morgun ætla ég aðeins út á lífið með Louise og bróður hennar
sem er í heimsókn frá Englandi. Held að Jesse komi líka. Gaman að
því og algjörlega kominn tími til að lyfta sér aðeins upp og gera
vel við sig í öllu þessu ritgerðarstússi. Úff þetta er að fara með
mig í gröfina, þetta er svo leiðinlegt! Finnst einhverjum gaman að
læra? Ég bara spyr? Æææi nei nei kannski ekki svo leiðinlegt. Alveg
gaman þegar maður er í rétta gírnum. Hef bara einhvernvegin ekki
fundið hann í þessari törn enda um margt að hugsa. Tildæmis tilgang
lífsins, hvar ég á að búa, hvort mig langi einhverntíman aftur í
kærasta, hvar ég eigi að vinna, hvað ég hlakka til að koma heim í
júní, hvernig ætli sé að vera ólétt, hvað get ég borðað í staðin
fyrir brauð....ofl ofl.
Já þannig er nú það. Ætla að smeygja mér í náttfötin mín (sem
verða að teljast afar kynþokkafull: gráar joggingnáttbuxur úr
hagkaup, grænblár silkináttkjóll úr Fríðu frænku, ullarsokkar frá
ömmu og hettupeysa...gerist ekki flottara!!), láta á mig leðjumaska
og smella Bridget í tækið. Ég vona að það banki enginn upp á og
sjái útganginn á mér, en ég á nú ekki von á því....
Blæ blæ í bili,
Ella sprella.
»
28.04.2005 14:33:05 / ellas
Já það held ég
nú. Er alveg algjörlega ótrúlega mikið að mygla yfir
ritgerðarskrifum. Skrifa svona 2 línur í einu og tékka svo
tölvupóstinn minn...hahaha...kemur alltaf janf leiðinlega á
óvart að ég er ekki komin með nýjan póst á 2.ja mín. fresti!
Veit ekki hvað er að mér maður. Man ekki til þess að hafa
verið svona eyrðarlaus og bored á prófa/ritgerðartíma áður alla
mína skólagöngu. En það er kannski bara svona fljótt að gleymast.
Ef ég rifja upp menntaskólaárin þá var nú ansi oft leiðinlegt og
erfitt að halda sér innvið í vorannarprófalestri. Held að vorönnin
sé erfiðari að því það er svo gott veður. Shit. Held að það sé
útséð með mastersritgerðina maður! Hvernig á ég að geta skrifað
hana í sumar??? Svo er þetta náttúrulega bara spennufall eftir allt
gamanið sem á undan hefur gengið, allar heimsóknirnar frá Íslandi
og svona. Hjálpar auðvitað ekki að standa svo í breakup pakkanum!
Annars er það allt að koma held ég.
Vá hvað vinkonur mínar eiga sæt börn. Árný og Súni eiga
Jón Darra, Anna Lára og Árni eiga Júlíu Ósk fyrsta íslending ársins
2005, Rúna og Öddi eiga minimug, Ísak Dýra, og Kiddý og Tóti alveg
um það bil að fara að eignast lítið kríli...Tala nú ekki um öll hin
börnin í mínum frábæra vinahóp, StefBjartur er náttúrulega algjör
töffari og á foreldra sem eru að fara að gifta sig í sumar (jeiii
get ekki beðið!!), Dagbjartur þeirra Bjarnveigar og Gunna
krúttímútt, Birna Júlía prinseessa Steina og Sunnu (sem giftu sig í
fyrra og það var sjúklega gaman!! “Sugartown..lalalala…”) og Álfrún
álfadís Birnu og Heiðars sem ég verð að hitta þegar ég kem í júní!
Ohhh hvað ég er rík að eiga svona mikið af litlum krúsídúllu
“frænkum og frændum”. Veit ekki hvað er að koma yfir mig en mér
finnst þetta allt svo yndislegt!! Held að það sé aldurinn að færast
yfir. Auk þess ligg ég á barnalandi í ritgerðarskrifunum og skoða
litlu krílin í vinahópnum... Vona að ég verði ólétt kærasta í Cork
innan árs! Nei nei bara að djóka. En samt... Er búin að gera
samning við vin minn (vona að þú munir það, þú veist hver þú ert
...vorum reyndar svoldið full þá) um að ef ég verð ekki búin að
eignast barn þegar ég er 37 ára þá ætlum við að skella í eitt. Og
þetta segi ég sem fram að þessu hef statt og stöðugt haldið því
fram að ég ætli aldrei að eignast barn..þetta er smitandi..er að
segja ykkur það!
Fyrst ég er
byrjuð að koma með svona yfirlýsingar get ég alveg eins látið aðra
flakka:
ÉG ÆTLA AÐ VERA
ANNAÐ ÁR HÉR Í DUBLIN!!!!!!!!!!!!!!!
Meira um það
síðar...
nú verð ég að fara
að læra,
Ella sprell.
»
26.04.2005 12:03:18 / ellas
Sumarið er sko aldeilis að koma hér í Dyflinni og það er
frábært! Samt svo fyndið að veðráttan minnir svolítið á veðráttuna
heima á Fróni. Það er aldrei hægt að búast við einni tegund af
veðri yfir heilan dag! Flestir morgnar eru alveg yndislegir,
sólin skín og fuglarnir syngja. Alveg fram að svona eitt hálf tvö.
Þá fer að skýja og svo seinnipartinn er yfirleitt rigning. Þetta
hefur verið svona síðustu vikuna en ég er alltaf janf vongóð um að
sólin haldist á lofti allan daginn. Hlýtur að fara að koma að því.
Annars er þetta bara ágætt því ég þarf að halda mig innivið og lesa
og skrifa ritgerðir. Þetta var veðurhorn Speki Elínar.
Að öðru. Í gærkvöldi hittumst við í bekknum niðrí skóla og
deildin bauð okkur upp á vín og bjór. Þegar veigarnar voru
þurrausnar héldum við niður á Tonic sem er svona Vegamót þeirra
Blackrock-búa. Mjög fínn staður. Skemmtilegt kvöld en ekkert
markvert sem gerðist. Í dag er ég pínu þreytt og með pínu
hausverk.
En hef samt hugsað mér að vera dugleg og (p)rumpa af nokkrum
blaðsíðum í fyrri ritgerðinni minni. Hún er um "how dynamics of
gender, representation and power infect and iform the dramaturgical
landscape of Marina Carr's Portia Coughlan and Brian
Friel's Dancing at Lughnasa" ef einhver skyldi hafa áhuga
á því...hahaha!! En mér finnst ég vera mjög sniðug að velja akkurat
þau tvö leikrit sem ég ætla að fjalla um í mastersritgerðinni minni
svo ég get byrjað rannsóknarvinnuna núna strax. (Nörd)
Annars eru heimsmálin ofarlega á baugi...kosningar í Bretlandi,
nýr páfi, allt að verða vitlaust í MÍ, mig langar í ný föt og missa
5 kg, langar pínu í hjásvæfu en veit að það er ekki sniðugt eins og
ástandið er á sálinni.... Já nei nei, ég held að það sé útséð um
það að þetta blogg eigi einhverntíman eftir að verða intellectualt
og pólitískt meðvitað (þó að sjálf sé ég það vissulega). Ætlaði
eitthvað að þykjast taka Þóru mína K. til fyrirmyndar og tala um
það sem skiptir máli en sé það núna að ég er miklu betri í að tala
um persónuleg (vanda)mál. Vona að lesendur mínir séu sáttir við
það!
Segi bless í bili,
Ella sprell.
»
23.04.2005 13:27:05 / ellas
Pantaði mér far til Íslands í morgun. Kem þann 15.júní og verð til
27. Jesss...er svo spennt að komast heim! Eins gott að mér verði
boðið í brúðkaupið hjá Kriss og Bryss..hahahaha...! Smá pressa á
þau núna...nei nei, bara að djóka!
Annars langar mig bara að óska Þóru Möggu til hamingju með afmælið
í dag. Þú lítur ekki út fyrir að vera ári eldri en 19...eða kannski
svona 23...! Til hamingju lúlla!
Var að pæla, tenglarnir sem ég er með hérna til hliðar eru nú ekki
allir rosa virkir! Þessvegna ákvað ég að bæta einum við, hún Þóra
Karítas vinkona mín var að byrja að blogga og vil ég bjóða hana
hjartanlega velkomna í bloggheima. Tékkið á því....!
Læra læra læra læra læra......shit hvað ég nenni því ekki og langar
bara í eitthvað að borða.
Er eðlilegt þegar fólk hættir saman að það tali saman á hverjum
degi?? Dísessss..nenni samt ekki að pæla í hvað er eðlilegt og hvað
er ekki eðlilegt í svona málum, geri bara það sem mér finnst
best...veit samt ekki hvað er best?!??!!?! Læra og ekki hugsa um
einkalífið fyrr en eftir mánuð eða eitthvað..hmmmmmm
Bless í bili,
Ella sprell.
»
22.04.2005 19:40:55 / ellas
Jæja þá! Kominn tími til að blogga smá. Vil byrja á því að þakka
fyrir frábær komment og kveðjur, það er gott að vita af svona mörgu
góðu fólki sem þykir vænt um mig 
Vikan hefur verið svona la la... Líður aðeins, pínulítið skár
með hverjum deginum. Er enn eitthvað voða ringluð og leið inn á
milli. Hef bara reynt að hafa nóg að gera...samt alltaf eitthvað
annað en að læra Var að hjálpa Helen að flytja sunnudags- og
mánudagskvöld. Á þriðjudaginn hitti ég Keaneo, vins hans Bibs (og
vin minn auðvitað líka!) niður í bæ og við fengum okkur nokkra
saman. Áttum gott spjall og hann sagði að þeir vinirnir allir væru
alveg miður sín yfir því að ég eigi ekki eftir að koma aftur á
pöbbinn í Newbridge með þeim. Ahhhh gott að vera saknað, en hver
veit nema ég eigi eftir að fara aftur til Newbridge
einhverntíman...dísesss vona það allavega... Við Keaneo fórum á
einhvern svaka rokkarabar sem ég hef aldrei farið á áður, og þar
hittum við tvo gaura, einn svía og einn íra. Þeir eru að læra
animation hér í Dublin og það er íslenskur gaur með þeim í bekk! Ég
spenntist öll upp að vita af samlanda mínum hér í borg, hef ekki
hitt neinn íslending hérna ennþá fyrir utan þá sem koma sérstaklega
að hitta mig. Lét gaurana fá símanúmerið mitt og viti menn, stráksi
hringdi í mig í dag og við ætlum að hittast einhverntíman
fljótlega! Gaman gaman! Vona að hann sé ekki kreisý eða
hhuuuuuuuuunnnddddleiðinlegur...hahahaahaha.... En bara til að
hafa það alveg á hreinu: ég er ekki að leita mér að næsta
kærasta...það verður sko mjöööög langt þangað til ég get hugsað mér
að fara aftur í samband.
Talandi um, Helen gat ekki beðið í eina viku frá sambandsslitum
mínum eftir að reyna að koma mér á blinddate. Hún vill endilega að
ég hitti strák sem hún er að vinna með á RTE2, sem er svona rás 2
þeirra íra. Hann er víst DJ, eða með sinn eigin þátt, og hann
heitir Damien. Það er reyndar svolítið kúl...gæti sagts vera að
deita Damien (Rice)...en nei..ég þvertók fyrir þetta alltsaman,
Helen og Damien til mikillar mæðu.
Fór á rosalega flotta dansleikhússýningu í gær hjá physical
theatre grúppu sem heitir DV8. Þau nota þvílíkt flott ljós og video
innsetningar og þetta var bara alveg ótrúlega flott. Get ekki lýst
því með orðum...afar hressandi. Gisti svo hjá Louise og við fórum í
ræktina og sund í dag. Afar hressandi líka. Verð að læra um helgina
og koma mér í gír fyrir ritgerðarskrif.....
Bless í bili,
ykkar Elín.
PS: Til að svara nokkrum kommentum: Sæti er bara góður vinur,
ekkert annað! Hann er meira að segja að deita franska stelpu og
planar að flytja með henni til france...
PPS: Held að litli bró sé að meika það allsvakalega! Þeir í
Apollo eru að spila á 18 ára balli í sjallanum á morgun. Ég spái
því að þeir verði kosnir "bestir á balli" árið 2005...
»
17.04.2005 16:59:22 / ellas
...já ég er ekkert í svaka bloggstuði þessa dagana en það kemur
allt næstu daga vonandi. Við Bibs vorum að hætta saman og höldum að
það sé mér fyrir bestu. Svolítið erfitt að sjá það núna en það
er sennilega rétt. Nenni ekki að fara út í smáatriði hérna á
veraldarvefnum...hahaha...fyndið samt að ég gæti rakið alla söguna
fyrir öllum heiminum ef ég vildi (eða allavega þá sem skilja
íslensku)...ok ruglpæling!
Veit að fólk stendur heilt upp aftur og réttir úr búknum eftir
ástarsorgir en rosalega finnst mér það ótrúlegt eitthvað núna. Auk
þess finnst mér ótrúlegt að ég eigi eftir að einbeita mér að
skólanum en ég neyðist nú bara til þess. Síðustu skóladagarnir í
vikunni og svo taka við lokaritgerðir fram í miðjan maí og svo bara
MASTERSRITGERÐIN Þetta hljómar allt óyfirstíganlegt eins og
er...en ég á eftir að meika þetta...vonandi!!!
Við erum vinir enda engin ástæða til annars. Engin reiði í
sambandsslitunum, bara sorg. Sem gerir þetta enn erfiðara held ég.
Svo er hann bara svo mikill hluti af mínu írska lífi....talandi um
írskt líf; ég þarf að fara að drullast til að ákveða hvort ég ætla
að vera hér í ár í viðbót eða ekki. ÚFFFFFFF....ekki alveg rétti
tíminn til að ákveða það held ég núna! En ég hef fram að
mánaðarmótum...!
Jæja, sendið mér orku og styrkingarstrauma yfir hafið, þarf á
þeim að halda núna.
Bless í bili,
E.
»
12.04.2005 19:39:44 / ellas
Já það má með sanni segja að tæknin sé eitthvað að stríða mér í
kvöld. Msn-ið ákvað að hætta að virka, ég get ekki signað mig inn,
enn á ný virðist sama vandamálið komið upp. Þetta var því stutt
msn-gaman hjá mér, Adam var ekki lengi í Paradís, eins og þeir
segja. ÓÞOLANDI!!!!!
Svo var ég að láta myndirnar síðan Frosti var í Dublin inn á
síðuna. Veit ég ekki fyrr en kemur melding á skjáinn um að fría
svæðið mitt sé orðið fullt, svo ef ég ætla að láta fleiri myndir
verði ég að gjöra svo vel að borga fyrir það. Það er líka
ÓÞOLANDI!!!! En kíkið samt á þær, það voru ekki nema nokkrar eftir.
Ég verð að finna eitthvað út úr þessu, hvort ég ætla að borga fyrir
svæðið eða hvað ég geri... Ætlaði svo að láta mynd af Gumma hér á
síðuna, en nei, það er auðvitað einhver villumelding og eitthvað að
hjá blog.central.is..... !!!!
Annars er bara almennur pirringur á heimilinu í dag. Ég eitthvað
óttalega lasleg, með hausverk og hálsbólgu og bara hin versta í
skapinu! Tæknivandamál ekki að hjálpa til. Eftirköst mikils
gestagangs sennilega! Hahaha...þarf maður ekki alltaf að gjalda
fyrir allt gamanið með einhverjum leiðindum?
Jammsa, segi þetta gott í bili elskurnar,
hafið það öll sem best,
knús og kossar frá undinni tusku!
»
11.04.2005 19:18:49 / ellas
Kristinn kom á fimmtudagskvöldið og fór eldsnemma í morgun.
Rosalega áttum við skemmtilegar stundir við Stinni!
Á föstudeginum vorum við hinsvegar afar óheppin með val á stað
fyrir lunch. Ofurgrumpy og bitur kona á sextugsaldri, í karla
vaffmálspeysu og með lesbíuklippingu, "þjónaði" okkur til borðs.
Þegar henni sýndist svo. Eftir að hafa beðið óralengi eftir að fá
að panta, tók hún sig til og sparkaði töskunum okkar betur undir
borðið áður en hún fékkst til að hripa niður það sem við vildum.
Þetta með töskurnar endurtók hún svo jafnt og þétt á meðan að dvöl
okkar stóð þarna inni. Mjög spes. Við fengum afar litla pizzu og
salat sem var ekki upp í nös á ketti.
Um kvöldið fórum við í snilldar afmælispartý til Eamor sem á
heima á hæðinni fyrir ofan. Ekta íslensk partýstemmning og Kristinn
heillaði að sjálfsögðu alla upp úr skónum með sínum einlægu
persónutöfrum! Að því loknu fórum við út að dansa á skemmtistaðnum
Bob...hahaha... það var snilld! Frábært kvöld sem endaði með
kínverskum mat fyrir svefninn.
Laugardagurinn fór í útivist í ágætis veðri þar sem við gengum á
ströndinni í Dun Laoghaire. Fíluðum okkur svakalega heilbrigt og
gengum og gengum! Verð að taka það fram að Kristinn er snillingur í
South Beach kúrnum svo að helgin fór mikið í spjall og meðvitaðar
ákvarðanir um val á mat. Að sjálfsögðu ætla ég að taka hann mér til
fyrirmyndar og hefja South Beach sjálf. Hef tildæmis ekkert borðað
óhollt í allan dag og er rosa ánægð með mig. Svolítið svöng samt!
Hahahaha.... En þetta skal tekið með trompi!
Laugardagskvöldinu eyddum við á dansgólfi á fáránlega corny bar,
en það skipti ekki máli því að við vorum búin að læra finnskan
diskódans sem Kiddý sendi okkur linkinn af. Ég mæli nú bara með því
allir kíki á þessa snilld og læri sporin! Þetta er mikilu erfiðara
en það lítur út fyrir að vera: http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=587
Sunnudagur fór í rölt í miborginni og svo bara afslappelsi.
Kristinn þurfti að fara héðan kl. 4 í nótt svo við bara tókum því
rólega síðasta kvöldið.
Búin að láta myndir inn á síðuna..tékkið á þeim! Frostamyndir
birtast bráðlega... Það er eitthvað léleg myndasíðan svo ég nenni
ómögulega að láta fleiri myndir í kvöld eins og ég ætlaði að
gera.
Bless kex í bili
E.
»
07.04.2005 11:44:36 / ellas
Vá hvað er gaman að vera komin aftur með MSN! Mér líður eins og
ástföngnum unglingi...hahaha
Nema hvað. Sunnudagur og mánudagur eftir af Frostliði í Dublin:
Sunnudaginn byrjuðum við á Bar/Restaurant þar sem við fengum okkur
lunch. Sumir voru heppnari en aðrir. Gísli tapaði feitt með chicken
wrapinu sínu og Haffi var frekar neðarlega með Guinnes pie-inu. Ég
held að ég hafi unnið með Chicken, mushroom and ham pie. Að áti
loknu röltum við í bæinn, fórum meðal annars í hljóðfærabúð (eina
af uppáhaldsbúðunum mínum hér, algjör snilld, allt til og það má
prófa öll hljóðfærin...gaman sko!). Að sjálfsögðu var stoppað við á
pöbbum annað slagið. Strákarnir voru ekki búnir að gefa upp alla
von um að komast á Kaiser Chiefs (er það skrifað svona??!!!) og
fóru fyrir utan tónleikastaðinn í von um að fá miða. Viti menn,
þeir fengu miða og allir voru sáttir! Aðallega ég þar sem
samviskubitið var að naga mig vegna þess að ég hafði klúðrar
miðakaupum fyrir þá. Við, eins og okkur einum er lagið, fengum
okkur kvöldmat á Pizzastað sem reyndist svo ekki vera með eina
pizzu á matseðlinum! Spes! En öll átum við yfir okkur, eins og oft
áður í ferðinni, og ultum út. Strákarnir fóru á tónleikana en við
Eva og Jón Yngvi (sem var einn af stelpunum þetta kvöld) röltum
heim á leið til að skila afurðum verslunarleiðangra dagsins og
skipta um föt.
Um hálf tíu héldum við Eva svo aftur niður í bæ en Jón Yngvi var
eftir heima að hvíla lúin bein. Leiðin lá á Celt. Frábæra barinn
sem við uppgötvuðum síðast þegar Eva var hérna. Og stemmningin var
ekki síðri núna! Sama hljómsveit að spila, þau eru víst alltaf að
spila á laugardags og sunnudagskvöldum. Algjör snilld, írsk tónlist
og fullt af fólki í stuði. Strákarnir komu svo að tónleikunum
loknum, um klukkan hálf ellefu og Jón Yngvi skömmu síðar. Við
uppgötvuðum að Jón á tvífara í bandinu, trommustrákinn. Ég birti
mynd síðar...þegar ég nenni að láta þær inn! Eins var spurning
hvort Haffi væri líkur fiðlaranum. Svari hver fyrir sig! Að
kvöldinu loknu tók ég taxa heim því ég átti að mæta í skólann á
mánudagsmorguninn. Hef ekki hugmynd um hvað krakkarnir gerðu eftir
að ég fór en hafði einhverjar spurnir af næturklúbbaheimsókn!
Á mánudag fóru krakkarnir í heimsókn til samtaka félagsmiðstöðva á
Írlandi (eða eitthvað álíka) en ég var í skólanum eins og sönnum
nemanda sæmir. Var reyndar með hugann við þau allan tíman, svo
mikið að ég sá mér ekki fært að mæta í síðustu tvo tímana. Var
komin í bæinn og hitti þau á Celt um klukkan 5. Við röltum heim með
viðkomu í nokkrum búðum. Elduðum dýrindis pasta carbonara og átum
yfir okkur að vanda. Kvöldið fór í afslöppun og spjall. Allir
komnir í rúmið um 1 leytið enda þurftu krakkarnir að vakna kl.4 til
að koma sér út á flugvöll. Ég ákvað að gerast svo djörf að sofa
lengur í íbúðinni. Var reyndar alveg drullustressuð um að staffið
kæmi inn að þrífa að ég svaf mest lítið. Svo gerðist það auðvitað
klukkan 8 að hurðin opnaðist og inn tróðst fylking skúringakvenna.
Ég lá í rúminu og hjartað hamaðist. Ég átti allt eins von á því að
mér yrði kastað í fangelsi fyrir að gista í íbúðinni án þess að
vera tékkuð inn og án þess að borga krónu. En þegar þær sáu mig í
rúminu sögðu þær bara sorry og fóru út aftur. Mér kom náttúrulega
ekki dúr á auga eftir þetta og var komin út um 10 leytið. Heim að
sofa eftir öllum degi og er nú í þessum skrifuðu orðum rétt að
jafna mig á þessum frábæru dögum með Frosta í Dublin!
Í kvöld kemur Kristinn! Hlakka til að fá hann. Það er búið að bjóða
okkur í afmælispartý á hæðinni fyrir ofan annaðkvöld! Fullt af 20 -
23 ára fólki/unglingum! Stuð!
Læra í dag ef MSN-ið hefur ekki of truflandi áhrif!
Bless í bili,
E.
»
06.04.2005 21:04:33 / ellas
Þvílík hamingja í herbergi 3-3-5 í Proby House í kvöld! Í rælni
minni prófaði ég í hundraðasta skipti að downloada msn-inu, og
í þetta skipti virkaði það Nú þori ég ekki að signa mig
út aftur því ég er svo hrædd um að ég geti ekki signað mig inn
aftur 
Allavega, má engan tíma missa....þarf að fara að kjafta við
fólk!! Gæti reynst svolítið truflandi á morgun því ég var búin að
ákveða að læra allan daginn að því Kristinn er að koma annaðkvöld
og ég læri ekkert um helgina. En vá.....MSN-IÐ er að virka!!!
Ótrúlega gaman maður!
Bless í bili,
E.
»
05.04.2005 17:25:56 / ellas
Vá það er nú aldeilis kominn tími til að uppfæra síðuna núna!
Gömul páskaeggja-skoðanakönnun, atburður liðinn og ekkert blogg í
marga marga daga.
En það er ástæða fyrir því. Frostalið fór heim eldsnemma í
morgun, í nótt nánar tiltekið, eftir að hafa átt frábæra 5
daga í Dublin. Rosalega var gaman hjá okkur!
Á fimmtudeginum var ég svo spennt að ég var komin í bæinn fyrir
klukkan 4 en þau lentu hálf 4 á Dublinarflugvelli. Ég sat á bekk
fyrir utan Christchurch ásamt fjöldanum öllum af þýskum pönkurum
(veit ekki alveg hvað þeir voru að gera þarna) og beið eftir að þau
skiluðu sér í íbúðina sem þau leigðu sér á þessu kirkjulega svæði
Dyflinnar. Loksins hringdi Eva yndi og vísaði mér rétta leið í
íbúðina sem reyndist hin fínasta ef frá er talið takmarkað magn af
heitu vatni í sturtunni og ótrúlega hávært þjófavarnakerfi í húsinu
við hliðina á!
Fimmtudagskvöldið fór í rölt á Temple Bar með viðkomu á Ítölskum
veitingastað þar sem allir borðuðu of mikið og bölvuðu því síðan
það sem eftir var kvölds þar sem ölvun náði ekki eins hátt og til
var ætlast! En kvöldið var notalegt og við fengum alveg okkar
skammt af U2! Á einum og sama barnum voru spiluð 4 U2 lög í röð.
Við giskuðum á að Bono ætti afmæli. Svo var ekki.
Föstudagurinn var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Við
byrjuðum á því að fara til Riolto sem er hverfi í suðvestur Dublin
(held að við höfum verið búin að sammælast um þá átt). Þar
heimsóttum við Youth project í Fatima sem er án efa fátækasta
hverfi Dyflinnar. Mikið hugsjónarstarf fer þar fram og
félagsmiðstöðin vinnur að skapandi verkefnum, eins og listmálun og
smíðum, ásamt íbúum tveggja blokka sem eru algjörlega að hruni
komnar. Mikið er um fíkniefnavanda og það er stór hluti af
baráttunni þeirra líka. Nú á að rífa blokkirnar og byggja nýjar og
helsta baráttumál fólksins í dag er að fá að kaupa íbúðirnar á
lægra verði en hinn almenni borgari. Gummi var mjög áhugasamur um
starfið, eins og við öll, og kom með kenningu um okkar starf á
Íslandi og af hverju það væri öðruvísi: "We just have nothing to
fight for". Kom svo upp hugmynd að Gummi myndi beita sér fyrir að
berjast fyrir réttindum samkynhneigðra og reyna að fá sem flesta
unglinga út úr skápnum.... En þetta var virkilega áhrifamikið og
fróðlegt að sjá og heyra. Ég bíð eftir myndum frá Gísla til að láta
á myndasíðuna 
Föstudagskvöldið var snilld. Að mestu eytt í garðinum á Whelans!
Whelans klikkar náttúrulega aldrei og sem betur fer voru allir að
fíla hann eftir að stórar yfirlýsingar mínar í vetur. Eftir Whelans
fórum við heim og vöktum lengi lengi. Þvílíkt stuð. Veit reyndar
ekki almennilega hvað ég get sagt meira. Þið hefðuð bara átt að
vera þarna.... 
Laugardaginn byrjuðum við á McDonalds í einni af FJÖLDAmörgum
átstundum okkar þessa 5 daga. Síðan fórum við Gummi heim í
snobbhverfið mitt, Blackrock, því hann varð auðvitað að fá að sjá
hvernig ég bý. Það var frekar kaldhæðnislegt eftir að hafa verið í
Fatima daginn áður. Mér leið eins og ríkri og heimskri tík. En svo
er ekki. Um kvöldið fórum við út að borða árshátíðardinner á
kínverskum veitingastað. Maturinn var algjör snilld og við ultum út
að honum loknum...eins og reyndar margoft áður og eftir. Það má
eiginlega segja að við höfum rúllað um Dyflinni. Ég er illa svikin
ef ég fitnaði ekki um einhver kíló eftir dagana með Frostaliðinu.
Einn okkar, nefni engin nöfn, greindist meira að segja sem
offitusjúklingur í einhverju mælitæki sem hann/hún var svo
djarfur/djörf að fara í í einhverju apóteki!!!
Eftir árshátíðardinner var haldið heim á leið og svo kíkt á
hverfispöbbinn. Að því loknu eyddum við stjörnubjartri nóttunni upp
á svölum, umkringd pálmatrjám, og bjuggum til ótrúlega flott
tónverk! Notalegt kvöld og alveg sumarbústaðarstemmningin eins og
við þekkjum hana Það sem setti strik sitt á kvöldið var dauði
Páfa og við eigum öll eftir að muna hvar við vorum þegar hann dó.
Rétt eins og fólk man hvar það var þegar John Lennon dó, eða svona
flestir muna það kannski...ekki ég samt! "Páfinn er dáfinn".
Ég á tvo daga eftir, sunnu- og mánudag. Læt þá bíða þar til
næst. Þetta er orðið allt of langt!! Læt myndir inn fljótlega líka.
Segi bara: takk, Gummi, Eva, Gísli, Haffi og Jón Yngvi, fyrir
frábæra daga í Dublini. Ég sakna ykkar strax!
Kristinn kemur svo á fimmtudaginn. Það verður frábært að fá hann
og halda mini páska! Þegar hann fer aftur tekur við afeitrun og
ávaxtakúr í mánuð...
Bless í bili,
ykkar Elín.
»
|
|