Speki Elínar
23.10.2006 23:12:49 / ellas

Nýjar myndir

Bara að benda ykkur á 2 ný myndaalbúm í; Myndir 2006/2. Eitt frá uppsetningu Antógónu og hitt frá New York. Tékkið á því babies...voða gaman. Ferlega sætt. Ohh já.

Er í ruglinu..verð að fara að sofa...yfir og út!
Lella

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 01:51:50 / ellas

Kveðjustundin nálgast...

Ég er andvaka á sunnudagskvöldi, sit upp í rúmi með tölvuna í kjöltunni og vafra um netið. Hvað gerði maður hér áður fyrr þegar maður var andvaka? Fyrir tíma fartölvunnar og þráðlausa netsins? Las í bók eða....?

Svefninn minn er eitthvað ferlega mis þessa dagana, eiginlega alveg síðan ég kom frá New York. Það er svona að vera ekki með vissa rútínu, ekkert að vinna og svona. Maður fer allur í rugl bara!

Ég var með kveðjupartý hérna heima í gærkvöldi. Það var stuð og alveg slatti af fólki. Guðný á Signstar og það kom sterkt inn þegar líða tók á kvöldið! Það var hreinlega slegist um míkrafónana enda flestallir leikarar í partýinu og því athyglissjúkir með eindæmum...hehe! Ég var hinsvegar bara frekar þreytt og búin á því og eiginlega ekki alveg í nógu miklu stuði. Held að of mikið social líf síðustu vikur sé farið að segja til sín! Því var ég hálf fegin þegar liðið fór að týnast út upp úr hálf 3. Sagði bless við slatta á einu bretti og fór ekkert að væla.

Fór hinsvegar aðeins að væla í dag þegar ég kvaddi Bibs sem fór til Newbridge seinnipartinn...æææi maður er svo emotional og meðvirkur eitthvað...finnst svolítið eins og ég eigi ekkert eftir að sjá hann aftur! En svona er lífið skrýtið.

Þessir dagar eru búnir að vera frekar sérstakir hérna, ég skiptis á að vera rosa happy og spennt fyrir að flytja heim og svo ferlega sorgmædd að kveðja vini og Dublin. Spes líka að hafa verið í 10 daga í New York, í allt öðrum heimi og hafa líka þurft að kveðja það allt... En það tekur eitthvað spennandi við heima, ég efast ekki um það!

Fer í lunch á morgun með Aofie og Marie, enn eitt kveðjudæmið. Ætla svo í Yoga annaðkvöld, ég hreinlega verð að koma mér aðeins í form...er algjörlega búin að misbjóða líkama mínum síðustu vikurnar og hann er ekki sáttur! Stefni á strangt detox á næstunni svo það verður ekkert djamm á mér þegar ég kem heim...bara jurtate og baunaspírur!!

Læt inn myndir af New York þegar ég hef tíma.

Ætla núna að reyna að fara að sofa...veit ekki alveg hvernig það á eftir að ganga!

Blæ í bili,

E.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 01:36:47 / ellas

Nýtt útlit - nýjar áherslur

Í tilefni haustsins (sennilega vetrarins heima á fróni) ákvað ég að skipta um útlit á síðunni minni sem hefur verið eins síðan ég hóf ritstörf fyrir tveimur árum síðan. Nú er hún í litum hausts og vetrar, hvít og gull lituð. Mér finnst hún nokkuð falleg og björt. Auk þess hreinsaði ég til í tenglunum því þar voru þó nokkrir bloggarar sem síðast blogguðu fyrir tveimur árum eða svo. Bætti við Dísu dívu, Gunnhildi höltu, Siggu norsku og Guðnýu irsku sem kemur til með að flytja inn í herbergið mitt þegar ég flyt heim. Gaman að því.

Tölvan mín semsagt komin í lag og ég blússandi hress. Eða svona. Frekar óstabíl en bara ágæt. Takk.

New York ferðin var semsagt alveg hreint frábær í alla staði. Ég fílaði mig rosa vel og gæti alveg hugsað mér að prófa að búa þar í einhvern tíma. Hún er vissulega stærri en allt sem ég gat ímyndað mér og sjúklega bissý. En á einhvern sjamerandi hátt samt. Ég held að ég hafi líka verið einstaklega heppin að heimsækja borgina við þær aðstæður sem ég gerði. Að vera með local fólki og sleppa öllu túrista rugli. En það fer auðvitað bara eftir því hvað fólk vill gera í borgarferðum. Strákarnir voru svo frábærir og við vorum alltaf að gera eitthvað skemmtilegt. Fórum á tvenna tónleika, aðrir voru í kjallara á einhverju gallerýi í Brooklyn. Það var vinnustofa þeirra listamanna sem héldu tónleikana og mér leið eins og í bíómynd eins og svo oft í þessari ferð. Þetta var rosa rokk og ég hugsaði til rokkara vina minna í Reykjavík og hvað þeir myndu gera flott gigg á þessum stað! Væri snilld að reyna að plögga ykkur að einhversstaðar í NY!!

Svo fórum við á opnun á listasýningu í Soho hjá vini hans Mark. Það var kúl og fullt af liði sem var eins og klippt út úr glanstímariti eða Sex and the City....haha...Ég var eitthvað að reyna að mingla við þetta lið, það gekk svona misvel. Ég veit ekki rassgat um málaralist og gat voða lítið tjáð mig um meiningu þeirra verka sem ég sá en hlustaði þeim mun meira á spekinga í þröngum gallabuxum og risastór sólgleraugu besserwissast um dýpt og energy...haha...

Ég held að ég hafi fitnað um 5 kg þessa 10 daga. Við vorum sífellt borðandi og þvílíkt magn af mat sem maður fær í hvert skipti! Það er rugl! Borðaði svoooo góðan mat á hverjum degi, það er sko hægt að finna góðan mat í New York. Ó já ó já, og kaffi og kökur og bjór....

Núna er ég að reyna að detoxa í nokkra daga til að losna við bólur og bumbu. Gengur ágætlega en ég hef ekki mikinn tíma þar sem ég þarf að eyðileggja detoxið strax á morgun! Það er Antígónu partý heima hjá leikstjóranum þar sem við ætlum að eyða ágóðanum af sýningunni í mat og drykki. Verður æði að hitta alla aftur! Svo á laugardaginn er ég með kveðjupartý hérna heima fyrir alla sem ég þekki á Írlandi! Það verður mega stuð og fullt af fólki. Vá hvað er skrýtið að vera að halda kveðjupartý hérna núna, finnst eins og ég hafi haldið partýið í Mosó fyrir hálfu ári...

Jæja, ég verð að fara að sofa...klukkan er að verða 3 um nótt. Ég er alveg rugluð í tíma vegna veru minnar erlendis...hahahaha

Later babies.

E.


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 16:15:12 / ellas

Back to Fair City

Vildi bara lata vita af mer elskurnar minar! Eg kom aftur til Dublin i gaer eftir algjorlega fullkomna ferd til New York. Tolvan min er i vidgerd as we speak svo eg er i Keano's tolvu. Fae mina a morgun og lofa ad blogga mikid og vel tha...

Lidur vel, en er eiginlega ein stor tilfinningahruga thessa dagana. Allt of mikid emotional stuff i gangi....

Meira a morgun,

knus i klessu,

Lella sem kemur bradum heim :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 17:19:03 / ellas

Ulllalllaaaa....

Hallo hallo min kaeru. Bara nokkrar linur fra hinni storkostlegu Nyju Jorvik! Eg er alveg ad fila mig i botn, storborgarlifid a sjuklega vel vid mig satt ad segja :) Eg er farin ad fara ut um allt ein, kann a subwayid og rata um alla Manhattan, sei sei ja!

Thad er semsagt buid ad vera gedveikt gaman sidan eg kom og strakarnir their Josh og Mark eru bestu hostar i heimi. Eg eyddi fyrstu nottinni i Brooklyn hja Josh. Hann byr i kul ibud med thaki sem haegt er ad tjilla a og horfa yfir alla Manhattan. Algjorlega biomyndalegt og frekar oraunverulegt svona vid fyrstu syn. Sidan eg hef gist hja Mark i Queens og hann byr i mjog flottri ibud lika. Eg elska thaegindin i Ameriku, thad er nu eitthvad annad en i henni Dublin minni...hahaha.... Allir med risastora iskapa, kingsize dunmjuk rum, gedveikt stor sjonvorp med trjilljon stodvum og eg veit ekki hvad og hvad. Mer hefur lidid eins og drottningu heima hja Mark og hann stjanar vid mig endalaust...mmm...eg gaeti alveg vanist thessu liferni!

Sidasta laugardag forum vid Mark til New Jersey, til mommu hans og pabba. Keyrdum lika um og forum i voda fallegan thjodgard. Eg var pinu ad frika ut thvi mer fannst eg heyra i bjornum endalaust, en thad voru bara ikornar og fleiri svona litil saet dyr...veit ekkert hvad thau heita. En thad var aedi ad fara adeins ut fyrir borgina og sja pinu meira af bando. Vid keyrdum meira segja til Pensylvaniu svo nu thegar hef eg komid til thriggja rikja a 5 dogum!

Eg hef hitt fullt af kul lidi, vinum theirra straka og allir eru voda nice og finnst eg ferlega exotisk med minn islensk-irska hreim! Vid forum i grillveislu a sunnudeginum og mer leid eins og eg vaeri stodd i ameriskri biomynd. Allir stodu ut um allt og drukku og reyktu graent, engin sat eins og i partyum heima, spes!

Framundan er fullt skemmtilegt, einhverjir rokktonleikar a fostudaginn, opnun a myndlistasyningu a laugardaginn, leikhus a fimmtudaginn og svo bara tjill og versla og lifa lifinu. Ahhhh eg er super hamingjusom eins og thid kannski getid lesid a milli linanna :)

Aetla nuna ad fara down town og versla eins og vindurinn. Hitti svo Mark thegar hann er buinn ad vinna og vid finnum eitthvad skemmtilegt ad gera. Kannski vid semjum rapplag saman...hahahahaha

Thora Magga, raudu flekkirnir voru ekkert til trafala, eg var otrulega svol a thvi satt ad segja. Held ad eg hafi bara verid svo fegin ad komast ut ur flugvelinni eftir 7 tima flug!

Bless i bili lullurnar minar,
Lella litla i storborginni.

PS: Langar ad benda a skodanakonnunina sem hefur verid su sama sidan fyrir ari thegar eg vissi ekki hvad eg aetti ad gera. Kannski einn lidanna se ad raetast....haaaaaa????

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 09:56:29 / ellas

New York!!

Jaeja eg er farin til New York...eda naestum farin. Er ad pakka sidasta dotinu og fer svo hedan eftir svona 2 tima. Tharf ad koma vid ut i bud og kaupa irskt whiskey fyrir strakana. Eg ma ekkert hafa i handfarangri nema sedlaveski og vegabref...veit ekki hvernig eg a eftir ad meika thad. Ekkert vatn og ekkert meik up!!! Svo tharf eg ad troda whiskeyinu i ferdatoskuna mina, vona ad hun brotni ekki a leidinni... ahyggjur ahyggjur...hehe

Pinu stressud en adallega sjuklega spennt! Be 17 eru einkunarordin eins og hann Kristjan minn benti mer a um daginn :) Laet heyra eitthvad fra mer ur Nyju Jorvik!

Yfir og ut,

ferdakvedjur,

Ella Sprell.


» 3 hafa sagt sína skoðun